Félagsmiðstöðin Þruman auglýsir eftir starfsfólki í tímavinnu í vetur, frá miðjum september 2016 til loka apríl 2017.
Um er að ræða vaktir seinni hluta dags og/eða á kvöldin einu sinni til tvisvar í viku og á einstaka viðburði Þrumunnar og Samsuð/Samfés yfir veturinn.
Umsækjendur þurfa að:
- vera orðnir tvítugir að aldri
- vera góðar fyrirmyndir
- hafa öflugt hugmyndflug varðandi tómstundastarf ungmenna
- vera brosmildir og jákvæðir með eindæmum
- hafa almenna skynsemi í lagi
- hafa ökuréttindi
- hafa hreint sakavottorð
- ekki neyta nokkurs konar tóbaks
- reynsla af starfi í félagsmiðstöð er kostur
Umsókn ásamt ferilskrá skal berast eigi síðar en 23. ágúst 2016 á netfangið thorsteinng@grindavik.is. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttafélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar um störfin veita Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri (thorsteinng@grindavik.is /420 1100) og Jóhann Árni Ólafsson, frístundaleiðbeinandi (johannao@grindavik.is / 420 1150).