Tökur á Svaninum ganga vel

  • Fréttir
  • 25. júlí 2016

Tökur á Svaninum, nýrri íslenskri bíómynd eftir Ásu Hjörleifsdóttur sem gerð er eftir skáldsögu Guðbergs Bergssonar rithöfundar og heiðursborgara Grindavíkur, hafa gengið vel. Myndin er að mestu leiti tekin upp á bóndabænum Ytra-Hvarfi í Svarfaðardal en einnig í Grindavík. 

„Tökum lýkur í ágúst. Við ferðumst suður í byrjun ágúst og skjótum aðeins í Grindavík. Það hefur margt skemmtilegt átt sér stað í tökunum. Við erum að vinna með húsdýr, hesta, hænur og beljur. Í myndinni fæðist kálfur og erum við að bíða eftir að ein kýrin hér í sveitinni beri. Það er ansi spennandi og það hefur verið krefjandi að skipuleggja tökur í kringum það. Heimamenn í dalnum hafa verið æðislegir og hjálpað okkur mikið við að gera þessa mynd að veruleika," sagði Marteinn í samtali við Kvikmyndir.is

Sjá myndir af tökum á myndinni á kvikmyndir.is

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir