Opið Svið verður á flottasta kaffihúsi landsins, Bryggjunni í Grindavík, föstudaginn 22. júlí og einnig viku síðar, 29. júlí. Leikar hefjast kl. 21:30 og standa til 00:30. Þetta verður hvorki meira né minna en í 22 skiptið sem opið svið er haldið á Bryggjunni en þessi viðburður er búinn að festa sig í sessi og er gríðar vinsæll. Það kostar ekkert inn og öllum er velkomið að koma með óskalög og/eða taka lagið með þeim Halldóri Lárussyni trommara, Ólafi Þór Ólafssyni gítarleikara og Þorgils Björgvinssyni alltmúligleikara.
Það er um að gera að mæta snemma til að tryggja sér sæti og tilvalið að gæða sér á humarsúpunni þeirra Bryggjubræðra en hún er sú besta í heimi. Langbesta.