Nú er unnið að því að ryksuga gúmmíkurl af sparkvöllunum tveimur í Grindavík auk þess að skipta út grasi á eldri vellinum við Ásabraut. Samið var við Altis um framkvæmdina. Myndin var tekin í morgun við Ásabrautina þar sem byrjað er á því að ryksuga gúmmíkurlið upp áður en grasið verður svo rifið af og nýtt sett í staðinn.