Í dag kl. 18:00 mun Leikhópurinn Lotta sýna leikrit sitt Litaland, á túninu við kirkjuna. Miðaverð er 1.900 krónur, ekki þarf að panta miða fyrirfram en það er um að gera að taka með sér teppi til að sitja á og myndavél svo hægt sé að taka mynd af sér með litunum eftir sýningu.
Um verkið af heimasíðu leikhópsins:
Sumarið 2016 mun Leikhópurinn Lotta setja upp leikritið um Litaland.
Það er hún Anna Bergljót Thorarensen sem skrifar verkið eins og síðustu ár. Tónlistin er samin af þeim Baldri Ragnarssyni, Birni Thorarensen og Rósu Ásgeirsdóttur. Það er Ljóti hálfvitinn Sævar Sigurgeirsson sem semur söngtextana fyrir utan einn sem Baldur samdi. Þau Egill Ingibergsson og Móeiður Helgadóttir hanna leikmyndina og Kristina Berman hannar og býr til búningana. Ljósmyndir voru teknar af henni Ragnheiði Arngrímsdóttur. Þessu er síðan öllu haldið saman af leikstjóranum okkar honum Stefáni Benedikt Vilhelmssyni en vinir Ævintýraskógarins þekkja hann sennilega best undir nafninu Hrói höttur :)
Við frumsýnum þann 25. maí og í kjölfarið ferðumst við um allt Ísland. Allt verkið verður að auki gefið út á geisladiski sem hægt verður að kaupa af okkur fyrir og eftir sýningar í sumar á sérstöku tilboðsverði og einnig í gegnum fésbókina okkar.
Ekki missa af Lottu á ferð og flugi um landið í allt sumar.