Jónsmessuganga í rigningu og roki

  • Fréttir
  • 27. júní 2016

Það hefur oft verið betur mætt í Jónsmessugöngu Grindavíkurbæjar og Bláa Lónsins en þetta árið. Margir samverkandi þættir gerðu það að verkum að heldur fámennt var í göngunni í ár en vissulega góðmennt. Veðurspáin var ekki góð, og þá voru bæði forsetakosningar í fullum gangi sem og stórleikur á Evrópumótinu í knattspyrnu. Allt í allt taldist skipuleggjendum til að um 50 manns hafi lagt leið sína upp á Þorbjörn þetta kvöld.

Þeir sem lögðu á fjallið voru þó ekki sviknir af upplifuninni. Ingó veðurguð mætti og spilaði og söng eins og algjör fagmaður og hélt uppi góðri stemmingu. Þegar hann hafði spilað í um 45 mínútur hafði bætt enn meira í vindinn og úrkomu svo að hópurinn hélt áfram göngu og voru menn fegnir því að komast ofan í heitt og notalegt lónið eftir hressandi göngu.

Grindavíkurbær vill koma á framfæri þökkum til Bláa Lónsins og björgunarsveitarinnar Þorbjarnar fyrir samstarfið og vonandi sjáum við öllu fleiri í göngunni að ári!

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir