Jónsmessugangan á morgun

  • Fréttir
  • 24. júní 2016

Jónsmessuganga Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar verður haldin laugardaginn 25. júní. Gangan hefst kl.20:00 (athugið breyttan tíma) og lagt verður af stað frá Sundlaug Grindavíkur. Gengið verður uppá fjallið Þorbjörn þar sem varðeldur verður tendraður. Áætlað er að ferðin taki um tvær og hálfa klukkustund. Tónlistarmaðurinn Ingó Veðurguð sér um söng og gítarspil á fjallinu. Dagskráin endar í Bláa Lóninu þar sem þátttakendur geta notið Jónsmessunæturinnar í töfrandi umhverfi Bláa Lónsins.

Bláa Lónið verður opið til miðnættis þetta kvöld. Enginn þátttökukostnaður er í gönguna og eru þátttakendur á eigin ábyrgð. Þeim þátttakendum sem vilja njóta Bláa Lónsins að göngu lokinni býðst aðgangur á sérverði, eða 4.500
krónur.

Göngustjóri er Siggeir F. Ævarsson.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir