65. fundur Félagsmálanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 10. mars 2016 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Birgitta H. Ramsay Káradóttir aðalmaður, Laufey Sæunn Birgisdóttir aðalmaður, Pétur Rúðrik Guðmundsson formaður, Valgerður Jennýjardóttir aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Nökkvi Már Jónsson, Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Dagskrá:
1. 1603042 - Félagsleg heimaþjónusta: Kvöld og helgarþjónusta
Sigrún Ásgeirsdóttir, forstöðumaður heimaþjónustudeildar í Ölfusi kemur inn á fundinn undir þessum lið og kynnir þjónustu við eldri borgara í sveitarfélaginu Ölfusi. Í framhaldinu kynnir Stefanía Sigríður Jónsdóttir, forstöðumaður Miðgarðs fyrirhugaða kvöld- og helgarþjónustu í sveitarfélaginu. Félagsmálanefnd fagnar framtakinu.
2. 1603041 - Dagvistun aldraðra: Aðstaða
Stefanía Sigríður Jónsdóttir, forstöðumaður Miðgarðs óskar eftir því að ein stór íbúð á neðri hæð við Austurveg nr. 5 í Grindavík verði tekin undir starfsemi dagvistar aldraðra. Félagsmálanefnd styður tillöguna og vísar málinu til bæjarráðs.
3. 1510034 - Málefni eldri borgara: Erindi frá aðalfundi SSS
Íbúaþing í þágu eldri borgara verður 19. mars 2016. Drög að dagskrá liggur frammi og eru kynnt.
4. 1603043 - Víðihíð: Breytingar á reglum um úthlutun íbúða í Víðihlíð
Kynntar eru tillögur um breytingar á reglum um úthlutun íbúða í Víðihlíð. Starsfmönnum nefndarinnar falið að vinna reglurnar áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fram á ný á næsta fundi nefndarinnar.
5. 1510091 - Málefni fatlaðra
6. 1602161 - Fjárhagsaðstoð
7. 1603003 - Fjárhagsaðstoð
8. 1602134 - Fjárhagsaðstoð
9. 1602181 - Húsaleigubætur
10. 1603037 - Húsnæðismál
11. 1603010 - Fjárhagsaðstoð
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:50.