Dregiđ í húsaleiknum 2016

  • Sjóarinn síkáti
  • 9. júní 2016

Vel á annað hundruð lausnir bárust í húsaleiknum skemmtilega „Hver býr hér?“. Um er að ræða léttan og skemmtilegan fjölskylduleikur sem fest sig hefur í sessi sem hluti af Sjóaranum síkáta. Bæklingi var dreift í öll hús í Grindavík. Þar voru myndir af útidyrahurðum og átti að þekkja þær, tvær úr hverju litahverfi, og skila svarblaðinu í Kvikuna. Vinningshafar voru dregnir út í morgun en þeir eru:

1. Gjafabréf í Bláa Lónið og þriggja rétta máltíð á Lava: Tinna Björg Hammer, Glæsivöllum 18B.

2. Gjafabréf í Bláa Lónið og þriggja rétta máltíð á Lava: Emilía Ósk og Júlía Björg, Staðarhrauni 13.

3. Matur fyrir tvo á Salthúsinu: Guðlaug R Jónsdóttir, Glæsivöllum 3.

4. Saltfiskur frá Þorbirni: Elvar Unndór Sveinsson, Túngötu 10, Reykjanesbæ.

Við þökkum þeim fyrirtækjum sem gáfu vinninga kærlega fyrir þeirra framlag og Grindvíkingum og gestum fyrir þátttökuna. Vinningunum verður komið til vinningshafa á næstu dögum.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir