Appelsínugula hverfiđ körfuboltameistarar Sjóarans síkáta

  • Sjóarinn síkáti
  • 7. júní 2016

Haldin voru tvö körfuboltamót á Sjóaranum síkáta um liðna helgi. Annarsvegar var mót fyrir yngri kynslóðina sem haldið var á fimmtudeginum og hinsvegar mót á milli hverfanna á sunnudagskvöldinu. Þáttakan hefði mátt verið betri í ár en þeir sem mættu skemmtu sér vel. Fámennt en mjög góðmennt, myndu sumir segja.

Á fimmtudeginum var keppt í tveimur aldursflokkum. 6-11 ára og síðan 12-16 ára. 

Sigurvegarar í 6-11 ára flokknum voru Hörður, Jóhann og Tómas

Sigurvegarar 12-16 ára voru þær Thea, Anna Margrét og Unnur Guðrún eftir æsispennandi úrslitaleik.

Sigurvegarar í fullorðnisflokki var appelsínugula hverfið eftir úrslitaleik við Rauða hverfið.
Liðskipan appelsínugulahverfisins var Nökkvi Már, Jóhann Dagur, Kristjana, Sandra Dögg, Eggert, Steinþór og goðsögnin Gummi Braga.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir