Dagskrá Sjóarans síkáta fer á fulla ferð í dag og eru margir áhugaverðir og skemmtilegir viðburðir á boðstólnum í dag. Hér er brot af því besta:
Kl. 10:30 - Fiskur undir steini
Leikskólabörn skreyta girðinguna á mót verslunarmiðstöðinni í tilefni Sjómannadagshelgarinnar.
Kl. 16:00 - Körfuboltamót Sjóarans síkáta við Hópsskóla.
Keppt í tveimur aldursflokkum, skráning á staðnum. 3.-6. bekkur byrjar og svo tekur 7.-10. bekkur við.
Kl. 19:00 - Pílumót Sjóarans síkáta 2016 fyrir 15 ára og eldri
Mótið fer fram í Kvennó. Skráningu lýkur kl. 18:00. Skráning fer fram í síma 865-2900 hjá Gunnari Má og á gunnar.gunnarsson@sjova.is
Kl. 19:15 - Grindavík - Leiknir R
Leikur í Inkasso-deild karla í knattspyrnu.
Kl. 21:00 - Rokktónleikar í íþróttamiðstöðinni
Rokktónleikar sem haldnir voru í kirkjunni í Menningarvikunni þar sem uppistaðan var grindvískt tónlistarfólk eru mörgum í fersku minni enda voru þeir frábær skemmtun. Nú hefur þessi sami hópur ákveðið að taka tónleikana upp á næsta stig og vera með enn kraftmeiri og glæsilegri tónleika, að þessu sinni í íþróttamiðstöðinni fimmtudaginn 2. júní kl. 21:00 í tengslum við Sjóarann síkáta. Fleiri hafa bæst við í bandið og því má búast við svakalegu fjöri.
Alls koma fram 15 flytjendur, sem flestir búa í, hafa búið í eða tengjast Grindavík á einhvern hátt. Þetta fólk kemur úr ólíkum áttum en á það sameiginlegt að njóta þess að flytja frábæra tónlist. Hópurinn ætlar að flytja framsækið rokk (e. Progressive Rock), sem átti sitt blómaskeið á áttunda áratugnum. Flutt verða lög eftir hljómsveitir á borð við Pink Floyd, Marillion, Yes og Queen, í bland við nýrra efni.
Hugmyndin kviknaði hjá Sveini Ara Guðjónsyni, Sólnýju Pálsdóttur og syni þeirra Guðjóni eftir að þau fóru í tónlistarsiglingu í Karabíska hafinu á síðasta ári þar sem stór hópur tónlistarfólks víðsvegar að úr heiminum kom saman í þessum tilgangi. Undirbúningur fyrir þá tónleika fór fram í gegnum veraldar-vefinn og þegar á svið var komið voru flestir að sjást í fyrsta skipti. Fékk fjölskyldan þá hugmynd eftir ferðina byggja á svipaðri hugmyndafræði og safna saman tónlistarfóki til að halda uppi heiðri þessarar tónlistarstefnu.
Tónlistin er oft á tíðum krefjandi og óvenjuleg, en lögin voru valin með því markmiði að hver sem er sem hefur áhuga á tónlist geti haft gaman að. Flutt verða lög sem flestir þekkja í bland við nokkrar „faldar perlur". Lögin eru fjölbreytt og hópur flytjenda eftir því. Hljómsveitarstjóri er Guðjón Sveinsson. Þeir sem koma fram eru:
Söngur:
Bergur Ingólfsson
Bjarni Halldór Kristjánsson
Ellert Jóhannsson
Helgi Jónsson
Páll Jóhannesson
Sólný I. Pálsdóttir
Tómas Guðmundsson
Urður Bergsdóttir
Gítar:
Bjarni Halldór Kristjánsson
Guðjón Sveinsson
Hljómborð:
Gísli Þór Ingólfsson
Kristján Kristmannsson
Saxófónn:
Kristján Kristmannsson
Þverflauta:
Telma Sif Reynisdóttir
Bassi:
Sveinn Ari Guðjónsson
Þorsteinn Ý. Ásgeirsson
Trommur:
Einar Merlin Cortez
Hreiðar Júlíusson
Aðgangseyrir: 2.000 kr.
Dagskrá Sjóarans síkáta í heild sinni