Glćsilegir vinningar í kappróđrinum í ár

  • Sjóarinn síkáti
  • 31. maí 2016

Kappróðurinn á Sjóaranum síkáta verður með glæsilegra móti í ár. Keppt verður í fjórum flokkum: landsveitir karla og kvenna, sjósveitir og litahverfin. Sigurliðin í hverjum flokki fá veglega pizzaveislu á Papas pizza en liðin með bestu tímana í karla og kvennaflokki fá einnig ferð í Bláa Lónið þar sem boðið verður uppá drykk á útibar og svo í fjögurra rétta óvissumatseðil á Lava. Það er því til mikils að vinna í ár og hvetjum við sem flesta til að taka þátt og gera kappróðurinn þannig að spennandi keppni á ný.

Það er Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur sem heldur utan um skipulagningu kappróðursins í samvinnu við fjölmörg grindvísk fyrirtæki. Skráning fer fram í síma 426-8400 eða á netfangið svg@svg.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir