Hið stórskemmtilega Götuhlaup Sjóarans síkáta og Ullmax 2016 verður haldið í annað sinn miðvikudaginn, 1. júní kl. 18:00 en Ullmax er styrktaraðili hlaupsins í ár. Skráning fer fram á www.hlaup.is og verður opin fyrir skráningar til kl. 22.00, þriðjudaginn, 31. maí. Einnig verður tekið við skráningum á staðnum en við hvetjum sem flesta til að skrá sig fyrir fram til að auðvelda framkvæmda hlaupsins. Eftir hlaup verður grill og gleði og ókeypis í sund fyrir keppendur. Drykkir í boði frá Ölgerðinni.
Hlaupaleið: Lagt er af stað við aðalinngang íþróttamiðstöðvarinnar í Grindavík og er tímataka með flögu. Tölvupóstur með upplýsingum um tíma er sendur til keppenda eftir hlaup og birtur á www.hlaup.is. Keppt verður í flokkum karla og kvenna, 18 ára og eldri og undir 18 ára.
Allir þátttakendur fá verðlaunapening og efstu sætin fá vegleg verðlaun frá Ullmax. Ölgerð Egils Skallagrímssonar býður hlaupurum uppá svalandi drykki að hlaupi loknu. Hlaupnir eru 5 km.
Þátttökugjald: Þátttökugjald er 1.500 kr. fyrir 18 ára og eldri. Ókeypis fyrir yngri en 18 ára.
Grillveisla og ókeypis í sund eftir hlaupið.