Handverksmarkaðurinn er fastur liður á Sjóaranum síkáta. Að þessu sinni hefur met fjöldi skráð sig. Handverksmarkaðurinn verður að þessu sinni á efri hæðinni í Kvikunni. Þar verður fjölbreytt flóra af ýmsu handverki sem gestir og gangandi eru hvattir til þess að skoða. Handverksmarkaðurinn verður bæði laugardag og sunnudag frá kl. 13-17.