Eins og við greindum frá á dögunum var grillveisla Issa á Sjóaranum síkáta í uppnámi í ár. Allt útlit var fyrir að ekkert yrði grillað í ár en með samhentu átaki góðra manna er grillveislan aftur komin á dagskrá, þó með örlítið breyttu sniði. Að þessu sinni verður hún haldin í portinu við safnaðarheimili Grindavíkurkirkju, laugardaginn 4. júní, og verður grillað frá kl. 14:00 og fram eftir degi. Ágóðinn af grillveislunni í ár rennur óskertur til fjölskyldu sjómannsins Eðvarðs Arnar Kristinssonar sem fórst í sjóslysi núna í maí.
Yfirlýsing frá Issa vegna málsins:
Grillveislunni bjargað
Ég og með aðstoð og ábendingum góðra vina, hef ég ákveðið að halda grillveislu í ár, laugardaginn 4. júní. Að þessu sinni verður hún haldin fyrir framan safnaðarheimilið í portinu í Grindavíkurkirkju. Þar er skjól og friður, aðgangur að salerni og hægt að tilla sér inni. Grillaðir lambaskrokkar og meðlæti verða í boði frá kl 14:00. Einnig verður boðið uppá kaffisopa.
Ég mun verða með posa á staðnum sem og söfnunarbauk til að styrkja fjölskyldu Eðvarðs Arnar Kristinssonar sem lést af slysförum við vinnu sína, sjómennsku, nú í vor. Eðvarð sem var frá Súðavík lætur eftir sig eiginkonu og tvær dætur. Ég þekki ekkert til þessarar fjölskyldu, en fékk góð viðbrögð hjá þeim þegar ég sóttist eftir því að tengja grillveisluna við þeirra söfnun. Hægt er að leggja fjölskyldunni lið með því að leggja inná bankareikning 0156-05-060120 Kt: 040392-3789
Ég hlakka til að halda áfram með þennan viðburð og endilega látið sjá ykkur! Leggjum okkar af mörkum til að festa þetta styrktarverkefni í sessi. Ég mun taka við framlögum frá kl. 12:00 og á meðan að vilji er og jafnvel sjálfan á Sjómannadaginn í framhaldi.
Með bestu kveðjum og þökkum,
Jóhann Issi Hallgrímsson
Eðvarð Örn Kristinsson um borð í bát sínum