Ellefta árið í röð hefur Sigrún Franklín Jónsdóttir útbúið Söguratleik Sjóarans síkáta. Ratleikurinn er auðveldur og skemmtilegur útivistarleikur, sem stendur frá upphafi Sjóarans síkáta fram að Jónsmessu. Leitað er að spjöldum á stöðum sem merktir eru á ratleikskortið eða vísað á þá.
Í Grindavík eru margar söguminjar. Ratleikurinn vísar á nokkra slíka staði. Fróðleikurinn byggir á tilgátum en stuðst er við sagnir, örnefnalýsingar og munnmæli fólks í Grindavík. Gangið vel um minjar og nálæga staði.
Bókstafi og tölustafi á hverjum stað þarf að færa inn á lausnarblaðið og skila því í Kvikuna, Hafnargötu 12a, Grinda-vík ekki síðar en 24. júní. Dregið verður úr réttum lausnum og það tilkynnt í Jónsmessugöngunni á Þorbirni 25. júní.
á Þorbirni 21. júní.
Veglegir vinningar í boði.
1. Fjölskylduárskort í Bláa lónið.
2. Fjölskylduárskort í Bláa lónið.
3. Gjafakort í Nettó að upphæð 25.000 kr.
Ef spjöld finnast ekki eða hafa verið færð úr stað, vinsamlegast látið vita með því að hringja í Kvikuna, sími 420 1190.
Tyrkjaránið í Grindavík 1627, þegar 12 Íslendingum, þar af helmingur Grindvíkingar og þremur Dönum var rænt í
Grindavík, auk áhafnar á kaupfari utan við víkina. Eftir atburðinn urðu Grindvíkingar mjög óttaslegnir næstu aldir á eftir yfir mögulegri endurkomu ræningjanna. Afdrif Grindvíkinganna, sem rænt var, urðu með ýmsu móti. Sumir voru aðeins skamma hríð í þrældómi í Alsír. Komust til Danmerkur 1628 og heim til Íslands með vorskipunum sama ár. Aðrir komu aldrei aftur. Sýnilegar minjar og sögur um atburðinn eru viðfangsefni ratleiksins.