Dagana 27.-31. maí ætla drengirnir í 5. og 6. flokki fótboltans að selja sumarblóm eins og undanfarin ár.
Blómasalan er á bílaplaninu hjá Geo hótel við Víkurbraut og er opnunartíminn þessi: Virka daga opið kl 16-20. Um helgina er opið kl 11-15.
Blómasalan er helsta fjáröflun strákanna og hvetjum við fólk til að gera fínt fyrir sjómannahelgina og styrkja gott málefni.
Ath að því miður getum við EKKI tekið kreditkort.