Björgunarsveitin Þorbjörn er ómissandi hluti af því netverki sem heldur utan um Sjóarann síkáta. Er allt klárt fyrir hátíðina í ár? Við spurðum Boga Adolfsson, formanns sveitarinnar, út í málið.
„Skipulagið hjá okkur er reyndar orðið mjög gott eftir reynslu síðustu ára. Ferlið rennur allt mjög vel og allir þekkja sitt hlutverk. Við þurfum reyndar aðeins að endurskipuleggja okkur útaf breyttu hátíðarsvæði. En það þarf svo sem að fara yfir eitt og annað en annars gengur þetta mjög vel. Við erum með um það bil 25-30 manns í vinnu á hátíðinni hverju sinni og það er í mörg horn að líta. Við sjáum um að girða hátíðarsvæðið af og um gæslu í hliðunum meðan á hátíðinni stendur. Þá leiðir sveitin litaskrúðgönguna sem er skemmtilegt skipulagsverkefni sem hefur gengið vel undanfarin ár. Við setjum upp stjórnstöð fyrir hátíðarsvæðið við Vísi þar sem við erum með yfirsýn yfir svæðið, gæslan hefur bækistöð, sinnum minni-háttar óhöppum og sinnum börnum sem verða viðskila við foreldra sína.
En við erum ekki ein í þessu, við fáum góða aðstoð frá öðrum sveitum, sem eru raunar margar farnar að sækja í það að heimsækja okkur þessa helgi. Í ár fáum við til dæmis heimsókn frá Garðinum og Eyrarbakka. Á föstudeginum koma svo Vogamenn líka og aðstoða okkur og við fáum líka aðstoð frá Selfossi við gæslu á tjaldsvæðinu. Það er líka nóg að gera á sjónum. Við sjáum um gæsla í skemmtisiglingunni, bæði um borð og í kringum bátana. Þá sjáum við um kappróðurinn, koddaslaginn og flekahlaupið að ógleymdri sjópulsunni."
Allt þetta fólk frá sveitinni er í sjálfboðavinnu, en þið hafið nýlega gert myndarlegan samning við Þorbjörn hf sem og endurnýjað samning ykkar við bæinn, ekki satt?
„Jú, við gerðum rekstrarsamninga, bæði við Vísi í fyrra og Þorbjörn núna, hafa breytt miklu fyrir reksturinn hjá okkur. Svo eigum við gott samstarf við bæinn líka og það er nýr samningur í burðarliðnum. Samstarfið við sjávarútvegsfyrirtækin er náttúrulega bakbein sveitarinnar. Hér í Grindavík var í fyrsta skipti á Íslandi skotið úr fluglínutækjum árið 1931 þegar Cap Fagnet strandaði. Þá var 38 manns bjargað og síðan þá hefur sveitin alls bjargað 232 mannslífum í 22 sjóslysum."
Svona að lokum. Nú fara menn að detta í mikinn skreytingagír. Þið Snædís eruð þekkt fyrir glæsilegar skreytingar sem hafa vakið athygli á landsvísu. Er eitthvað óvænt á prjónunum í ár?
„Við erum með ýmsar spennandi hugmyndir en erum á fullu í framkvæmdum heima sem setur smá strik í reikninginn. Við verðum aðeins að bíða og sjá, það er aldrei að vita hvað maður dregur fram úr erminni. Sjón verður vonandi sögu ríkari."