Sjómannadagshelgin er auđvitađ stórhátíđ okkar sjómanna

  • Fréttir
  • 26. maí 2016

Við tókum hús á Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur, en félagið fagnar 60 ára afmæli í haust. Fyrir svörum voru varaformaðurinn Ingvi Örn Ingvason og ritarinn Steingrímur E. Kjartansson.

 Nú er Sjóarinn síkáti handan við hornið en hátíðin fagnar 20 ára afmæli sínu í ár. Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur hefur staðið vel við bakið á hátíðinni frá upphafi en nú er öllu tjaldað til, eða hvað?

„Sjómannadagshelgin er auðvitað stórhátíð okkar sjómanna og við höfum alla tíð lagt mikla áherslu á hátíðarhöldin á sunnu-deginum. Sjóarinn síkáti hefur svo vaxið og dafnað síðastliðin ár og er alltaf að verða stærri og glæsilegri hátíð. Í ár var ákveðið að leggja áherslu á skemmtun fyrir börnin. Það er félaginu mikið hjartans mál að hátíð sé fyrir alla og allir geti tekið þátt á jöfnum forsendum. Þess vegna höfum við lagt mikið uppúr þessu atriði í ár og vonandi mælist það vel fyrir. Í samvinnu við Grindavíkurbæ og Verkalýðsfélagið ætlar félagið að bjóða öllum börnum frítt í leiktækin frá Sprell.is, fyrir utan fallturninn, og uppá ókeypis andlitsmálun. 
Svo erum við að reyna að blása lífi í kappróðurinn á ný eftir smá lægð undanfarin ár, og hvetjum við fyrirtæki og auðvitað hverfin til að senda lið og taka þátt. Það eru flottir vinningar í boði og bara stemming að taka þátt fyrir sitt fyrirtæki eða hverfi. 
Sjóarinn síkáti er orðin stór og mikil fjölskylduhátíð sem dregur að sér marga gesti sem er auðvitað skemmtileg þróun og frábært fyrir bæinn okkar en það má ekki gleyma því að þetta er Sjómannadagshelgin og við megum ekki gleyma öllum okkar skemmtilegu sjómannadagshefðum. Þær setja skemmtilegan svip á daginn og vonandi fáum við sem flesta með okkur í lið í ár."

Nú verður Sjómanna- og vélstjórafélagið 60 ára í haust. Það hefur væntan-lega margt breyst hjá sjómönnum á þessum langa tíma. Hver eru helstu baráttumálin í dag?

„Kjarasamningarnir hafa verið í brennidepli undanfarið, enda hafa þeir verið lausir í nokkurn tíma. Núna standa yfir samningaviðræður og við erum bjartsýnir á að það náist loksins samningar. Að ná dagpeningum inn í samningana er krafa sem við náum vonandi í gegn, það myndi mikið vinnast með því. Öryggismál sjómanna hafa líka verið í brennidepli, og hafa stórbatnað á síðustu árum. Það er orðið skylda að fara í Sæbjörgu fyrir alla sem fara á sjó, sem er mikið framfaraskref. Mönnunarmál hafa líka verið í deiglunni, fækkanir í áhöfnum hafa aukið slysatíðni. Þá vill það brenna við að hvíldartími sé ekki alltaf virt-ur á minni bátum. Þannig að það er alltaf nóg af baráttumálum hjá okkur, við erum alltaf á tánum.
En svona þar fyrir utan þá höfum við lagt mikla áherslu á að styðja vel við bakið á björgunarsveitinni, enda eru þeir okkar sjúkrabíll í störfum. Okkar styrkveitingar fara að miklu leyti til þeirra, stórar gjafir á Sjómannadegi og minni styrkir yfir árið.
Svo er afmælisdagurinn félagsins í haust, þann. 21. október. Okkur langar að vera með smá afmælisveislu, opið hús á Sjómannastofunni þar sem fólk getur kíkt í kaffi, lifandi tónlist og ljósmyndasýning úr sögu félagsins. Þetta er þó allt ennþá á teikniborðinu, skýrist betur þegar nær dregur."

Að lokum, hvað gerið þið sjálfið í tilefni hátíðarinnar?

Ingvi - „Börnin fá svolítið að ráða ferðinni. Þau eru að skapa og skreyta úr allskonar gömlum munum. Ég leyfi þeim að mála og föndra og reyni að gera þetta svolítið að þeirra hátið. Það er er gott skreytingarsamstarf í götunni minni og allir taka þátt og finna sér hlutverk."

Steini - „Ég skreyti að sjálfsögðu, reyni að bæta í frá ári til árs og endurnýja gömlu skreytingarnar. Götugrillið er alltaf skemmtilegt og ég er fyrsti maður út og reyni að virkja alla með mér í götunni. Þetta verður alltaf skemmtilegra eftir því sem fleiri leggjast á árarnar og taka þátt."

Mynd: Ingvi og Steingrímur.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!