Spjöldin sem sett voru upp fyrir Ljóðahringinn í tilefni Hreyfiviku fuku út í hafsauga í rokinu á þriðjudaginn og vitum við ekki til að nokkur maður hafi náð að fara allan hringinn. Við reynum að koma honum aftur upp í dag, en svo er búist við öðrum hvelli á föstudaginn, svo óvíst er hvort þau spjöld hangi nokkuð lengur. Ef allt annað bregst, verður hringurinn settur upp að nýju um helgina og fær hann vonandi frið fyrir ágangi vindsins!