Það var föngulegur hópur kvenna sem gekk um Grindavík í gær í blíðskaparveðri en á hverju ári hittast kvenfélagskonur úr Kvenfélagasambandi Gullbringu- og Kjósarsýslu og ganga saman. Í ár var níunda gangan og var hún haldin hér í Grindavík og mættu um 200 konur. Genginn var léttur hringur með fróðlegum stoppum en eftir göngu var farið í Gjánna þar sem boðið var upp á súpu og kaffi og meiri fróðleik
Þá voru voru verslanir í bænum kynntar sem höfðu opið sérstaklega fyrir göngugesti fram eftir kvöldi, sem vakti mikla lukku. Einnig voru kynnt fyrirtæki og veitingastaðir sem taka á móti hópum í Grindavík.
Þar sem Kvenfélagskonur koma saman þar er gaman.
Félögin innan K.S.G.K.
Kvenfélagið Fjóla Vogum
Kvenfélag Grindavíkur
Kvenfélag Kjósarhrepps
Kvenfélag Mosfellsbæjar
Kvenfélag Álftarnes
Kvenfélag Keflavíkur
Kvenfélag Gefn Garði
Kvenfélag Garðabæjar
Kvenfélag Seltjörn
Kvenfélag Hvöt Sandgerði