Atvinna - Laus störf við leikskólann Laut

  • Stjórnsýsla
  • 28. apríl 2016

Deildarstjóra og leikskólakennara vantar til starfa í leikskólanum Laut í Grindavík frá 9. ágúst. Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og sambands íslenskra sveitarfélaga. Skólastjóri hefur heimild til að greiða tímabundin viðbótarlaun vegna sérstakrar hæfni, álags eða vinnuframlags.

Leikskólinn er fimm deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða - 6 ára. Við erum ,,Skóli á grænni grein" og vinnum eftir Uppbyggingarstefnunni - Uppeldi til ábyrgðar. Gleði , hlýja og virðing eru einkunnarorð skólans. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu hans.

Hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
Færni í samskiptum.
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 426-8396 og 847-9859.Umsóknir berist til leikskólastjóra á netfangið gleik@grindavik.is

Endurnýja þarf eldri umsóknir.

Umsóknarfrestur er til 1. júní 2016


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum