Að vanda verður söngvakeppni á 17. júní í sumar. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið því við viljum endileg fá fleiri til að taka þátt en verið hefur undanfarin ár. Það er okkur mikið gleðiefni að tilkynna að Söngvaborg með Siggu Beinteins og Maríu, ætla að halda utan um söngvakeppnina í ár á 17. júní.
Við viljum endilega fá ykkur til að hvetja sem flesta krakka að taka þátt, þau geta sungið ein eða fleiri saman. Æfing með Siggu og Maríu verður að morgni 17. júní en keppnin eftir hádegi. Keppnin er fyrir 14 ára og yngri.