1407. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 19. apríl 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson varaformaður, Kristín María Birgisdóttir formaður, Magnús Andri Hjaltason varam. áheyrnarfulltrúa, Páll Jóhann Pálsson varamaður, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Formaður leitar heimildar í upphafi fundar til að bæta tveimur málum á dagskrá með afbrigðum.
Bæjarskrifstofur Víkurbraut 62: Stækkun og breytingar frh
Forsetakosningar 2016: framkvæmd kosninga
Dagskrá:
1. 1604043 - Jafnréttisáætlun: jafnlaunaúttekt 2015
Þorkell Guðmundsson ráðgjafi frá PwC kom á fundinn og kynnti niðurstöður fyrstu jafnlaunaúttektar hjá Grindavíkurbæ. Þorgerður Guðmundsdóttir deildarstjóri launadeildar sat fundinn undir afgreiðslu málsins. Úttektin er gerð á grundvelli Framkvæmdaáætlunar jafnréttismála í Grindavík til ársins 2017.
2. 1602062 - Ársuppgjör 2015: Grindavíkurbær og stofnanir
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusvið kynnti helstu frávik frá fjárhagsáætlun ársins 2015.
Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að vandað sé til áætlunargerðar og að hún sé virt.
3. 1602062 - Ársuppgjör 2015: Grindavíkurbær og stofnanir
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs kynnti Ársreikning Grindavíkurbæjar og stofnana hans fyrir árið 2015.
Bæjarráð vísar ársreikningnum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
4. 1604020 - Þjónustumiðstöð: sláttur opinna svæða
Sigmar Árnason byggingafulltrúi óskar eftir heimild til að framkvæma verðkönnun á garðslátt á opnum svæðum og heimagörðum í Grindavík.
Bæjarráð felur byggingafulltrúa að framkvæma verðkönnun og leggja niðurstöður fyrir bæjarráð.
5. 1511110 - Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja
Undirritaður samningur við knattspyrnudeild UMFG lagður fram, með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.
Bókun fulltrúa B-lista
Sú augljósa hagræðing sem vinnst með því að allar deildir noti nýja skrifstofu og félagsaðstöðu í Gjánni nýtist ekki ef Grindavíkurbær ætlar áfram að greiða rekstrarkostnað á núverandi félagsaðstöðu Knattspyrnudeildarinnar.
Þar sem gildistími samnings er tiltölulega stuttur þá eru miklar líkur á að í lok samningstímans verði óbreytt staða í húsnæðismálum Knattspyrnudeildarinnar og mun liggja beinast við að framlengja þessum samning nema fyrir liggi áætlun um hvað taki við. Þar sem engin áætlun er um framhaldið er ekki hægt að samþykkja samninginn.
Páll Jóhann Pálsson
Bæjarráð vísar samningnum til staðfestingar í bæjarstjórn með tveimur atkvæðum D og G lista. Fulltrúi B-lista er á móti.
6. 1603026 - Knattspyrnufélagið GG: Beiðni um styrk
Umsókn Knattspyrnufélagsins GG um styrk vegna keppni félagsins í 4. deild Íslandsmótsins í sumar.
Frístunda- og menningarnefnd er jákvætt gagnvart erindinu, en vísar því til afgreiðslu bæjarráðs þar sem ekki eru til fjárheimildir.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að ganga til samninga við GG.
7. 1604038 - Lánasjóður sveitarfél: Arðgreiðsla vegna ársins 2015
Tilkynning Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. um arðgreiðslu vegna ársins 2015.
Á aðalfundi þann 8. apríl var samþykkt að greiða út arð til hluthafa að fjárhæð 523.000.000 kr. Hlutur Grindavíkurbæjar 1,089% og arðgreiðsla nemur því 5.695.470 kr. Í samræmi við lög nr. 94/1996 skal halda eftir 20% fjármagnstekjuskatt og því koma 4.556.376 kr. til útborgunar sem arður frá Lánasjóðnum.
8. 1603077 - Bæjarskrifstofur Víkurbraut 62: Stækkun og breytingar frh
Tilboð í stækkun og breytingar á bæjarskrifstofum, fyrri áfangi, lagt fram. Eitt tilboð barst.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við tilboðsgjafa og leggja samning fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
9. 1604058 - Forsetakosningar 2016: framkvæmd kosninga
Viljayfirlýsing um tilraunaverkefni um utankjörfundaratkvæðagreiðslu milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og Sýslumannafélags Íslands vegna forsetakosninga 2016 lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja inn umsókn um þátttöku í verkefninu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:30.