13. fundur umhverfis- og ferðamálanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 13. apríl 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Gunnar Margeir Baldursson formaður, Anita Björk Sveinsdóttir aðalmaður, Hjörtur Waltersson aðalmaður, Magnús Andri Hjaltason aðalmaður, Jón Emil Halldórsson aðalmaður, Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Siggeir Fannar Ævarsson Upplýsinga- og skjalafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Siggeir F. Ævarsson, upplýsinga- og skjalafulltrúi.
Dagskrá:
1. 1502095 - Umhverfis- og ferðamálanefnd: Kynningar á fundum
Hjalti Guðmundsson kom á fundinn og kynnti nokkur af verkefnum sumarsins og áherslur. Nefndin leggur til að fyrir fjárhagsáætlunargerð næsta árs verði óskað eftir stöðugildi fyrir yfirflokkstjóra fyrir vinnuskólann, til þess að sérþekking og starfskraftar Hjalta nýtist sem best yfir sumarið.
2. 1502020 - Reykjanes Geopark: Kynning
Eggert Sólberg Jónsson, verkefnastjóri Reykjanes Geopark, kom á fundinn og fór yfir það sem er á döfinni hjá Geoparknum og í hvaða verkefnum er verið að vinna.
3. 1604013 - SÍS: Lokaskýrsla stefnumótunar í úrgangsmálum.
Frestað.
4. 1603024 - Umhverfisstefna Grindavíkurbæjar: Hugmyndavinna
Nefndin felur starfsmönnum hennar að vinna áfram tillögur um umhverfisstefnu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40.