null
Fundur haldinn 3. apríl 2016 kl. 18:00 á Papa‘s pizza.
Mættir:
• Elsa Katrín Eiríksdóttir, formaður sem stýrði fundi
• Margrét Fríða Hjálmarsdóttir, sem ritaði fundargerð
• Kolbrún Dögg Ólafsdóttir
• Ólöf Rún Óladóttir
• Karín Óla Eiríksdóttir
• Veigar Gauti Bjarkason
• Nökkvi Már Nökkvason, varaformaður
• Telma Lind Bjarkardóttir
• Ólafur Þór Unnarsson
• Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri
1. Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði
Karín og Kolla sögðu frá ráðstefnunni sem fram fór á Selfossi og var mjög áhugaverð og skemmtileg.
2. Bæjarstjórnarfundur í 26.apríl
Hugmyndir til að fjalla um á fundinum:
- Ítreka með strætóferðir í FS
- Bjóða þeim á fund
- Dale Carnegie (Þorsteinn, Elsa og Kolla fylgja málinu eftir)
Elsa ætlar að fjalla um starfsemi ungmennaráðs.
Nökkvi ætlar að fjalla um áskoranir.
Kolla ætlar að fjalla um Dale Carnegie.
3. Vinnuskólinn
Þorsteinn fór yfir fyrirkomulag hjá vinnuskólanum í sumar.
Fleira ekki bókað. Fundi slitið kl. 19:15.