461. fundur Bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 29. mars 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson forseti, Guðmundur L. Pálsson Bæjarfulltrúi, Kristín María Birgisdóttir 1. varaforseti, Páll Jóhann Pálsson aðalmaður, Jóna Rut Jónsdóttir Bæjarfulltrúi, Ásrún Helga Kristinsdóttir Bæjarfulltrúi, Magnús Andri Hjaltason varamaður, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Forseti leitar heimildar í upphafi fundar til að bæta tveimur málum á dagskrá með afbrigðum.
Fundargerð 15. fundar skipulagsnefndar og fundargerð 12. fundar umhverfis- og ferðamálanefndar.
Samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
1. 1602113 - Breyting á deiliskipulagi: Reykjanesvirkjun.
Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og Guðmundur
HS Orka hf. óskar eftir leyfi til breytingar á deiliskipulagi Reykjanesvirkjunar skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einnig er óskað eftir mati Grindavíkurbæjar á því hvort breytingin teljist óveruleg sbr. 2. mgr. 43. gr. Í breytingunni er fyrirhugað að stækka stöðvarhús, skiljustöðvar og hreinsimannvirkja. Stækkanirnar eru innan núverandi byggingarreits en nýtingarhlutfall hækkar. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að hún verði grenndarkynnt fyrir Stolt Seafarm og Haustak.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
2. 1501193 - Deiliskipulag: Víðihlíð og nágrenni
Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, Páll Jóhann, Guðmundur, Kristín María, Jóna Rut og Magnús Andri
Tillaga að deiliskipulagi Víðihlíðar og nágrennis tekin fyrir eftir auglýsingu. Þrjár athugasemdir bárust frá almenningi, enn hafa ekki borist umsagnir frá Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirliti. Í athugasemdum frá almenningi er mótmælt byggingarreit suður af Víðihlíð og tillaga að annarskonar fyrirkomulagi fylgir einni þeirra. Skipulagsnefnd samþykkir innkomnar athugasemdir að hluta og verður umræddur byggingareitur felldur út úr tillögunni.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og sviðsstjóra verði falið málið til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 geri Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirlit ekki athugasemdir. Einnig verði sviðstjóra falið að svara þeim sem gerðu athugasemdir á þann hátt að tekið verði tillit til athugasemda er varða byggingarreit suður af Víðihlíð og ekki komi nýr byggingarreitur í staðinn.
Tillaga
Lagt er til að fresta samþykkt á deiliskipulagstillögunni.
Samþykkt samhljóða.
3. 1501233 - Gamli bærinn: deiliskipulag
Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur og Páll Jóhann, Kristín María
Tillaga að deiliskipulagi gamla bæjarins tekin fyrir eftir auglýsingu. Alls bárust fjórar athugasemdir frá almenningi og umsagnir bárust frá Minjastofnun, Vegagerð og Umhverfisstofnun. Skipulagsfulltrúi leggur fram drög að svörum og viðbrögðum við umsögnum og athugasemdum.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og sviðsstjóra verði falið það til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að svara þeim sem gerðu athugasemdir sbr. drög sem voru lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
4. 1603080 - Mælistöðvar á Reykjanesi: Umsókn um framkvæmdaleyfi
Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Guðmundur og Páll Jóhann
ÍSOR óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu á sex jarðskjálftamælum við eftirfarandi staði:
1. LFE (IMAGE-fónstæði) austan við Lágafell skammt frá Árnastíg.
2. SUH (IMAGE-fónstæði) austan við Sundvörðuhraun skammt frá Árnastíg.
3. RAH (IMGE-fónstæði ) við Rauðhól vestan við Eldvörp.
4. LAG (REYKJANET-fónstæði) í Lágum austan við Þórðarfell.
5. ISS (REYKJANET-fónstæði) við Borgarfjall skammt frá Sandakrastíg.
6. LSF (REYKJANET-fónstæði) í Litla-Skógfell.
Erindinu fylgir greinargerð dagsett 01.02.2016
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt með fyrirvara um leyfi landeiganda og að gert verði grein fyrir hvernig uppsetning fer fram án þess að utanvegaakstur eigi sér stað.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar með sömu fyrirvörum.
5. 1602004 - Umsókn um byggingarleyfi: Austurvegur 1.
Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, bæjarstjóri, Kristín María, Páll Jóhann, Jóna Rut, Ásrún og Magnús Andri
Grindavíkurbær sækir um byggingarleyfi fyrir nýrri suðurhlið á Austurveg 1. Erindinu fylgja teikningar unnar af Batteríinu Arkitektum merktar 1533-FRUMDRÖG 22.02.2016. Skipulagsnefnd leggur ríka áherslu að gluggakerfið standist álagskröfur. Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
6. 1603087 - Umsókn um byggingarleyfi Bakkalág 15 C
Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, bæjarstjóri, Páll Jóhann og Guðmundur
Stakkavík ehf. óskar eftir endurnýjun á eldra byggingarleyfi fyrir 167,3 m2 atvinnuhúsnæði við Bakkalág 15c. Erindinu fylgja teikningar unnar af Verkfræðistofu Suðurnesja dagsett 03.08.2010.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráform verði samþykkt.
Skipulagsnefnd bendir á að byggingarleyfi eru gefin út af byggingarfulltrúa þegar öll hönnunargögn hafa borist.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
7. 1603054 - Seljabót 1: Umsókn um byggingarleyfi, niðurrif
Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og Magnús Andri
Skeljungur hf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir niðurrifi á hluta af fasteigninni Seljabót 1. Erindinu fylgja teikningar unnar af Vigfúsi Halldórssyni dagsettar 26.02.2016.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
8. 1501154 - Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa
Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og Guðmundur
Tillaga að samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa lögð fram. Skipulagsnefnd leggur til að samþykktin verði samþykkt.
Tillaga
Forseti leggur til að afgreiðslu málsins verði frestað.
Samþykkt samhljóða.
9. 1502001 - Skipulagsnefnd: Samþykkt
Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og Guðmundur
Tillaga að samþykkt um skipulagsnefnd lögð fram. Skipulagsnefnd leggur til að samþykktin verði samþykkt.
Tillaga
Forseti leggur til að afgreiðslu málsins verði frestað.
Samþykkt samhljóða.
10. 1602104 - Daggæsla í heimahúsi: Tillögur um eflingu þjónustu
Til máls tóku: Hjálmar og Kristín María
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að eftirfarandi tillögur verði samþykktar:
1. Grindavíkurbær samþykkir að greiða niður námskeið fyrir dagforeldra.
a. Allir dagforeldrar í Grindavík sem starfa á grundvelli bráðabirgðaleyfa skulu eiga rétt á 100% niðurgreiðslu
b. Allir dagforeldrar sem sækja um og fá leyfi til og með 31.12.2016 skulu eiga rétt til 100% niðurgreiðslu
c. Allir dagforeldrar sem sækja um og fá leyfi frá og með 1.1.2017 skulu eiga rétt til 50% niðurgreiðslu
2. Grindavíkurbær samþykkir að veita árlegan búnaðarstyrk að fjárhæð kr. 50.000,- til allra dagforeldra sem starfa á grundvelli almenns leyfis.
3. Grindavíkurbær samþykkir að veita aukna niðurgreiðslu (50%) til þeirra dagforeldra er gæta eigin barna.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verið viðauki við fjárhagsáætlun ársins að fjárhæð 700.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögur bæjarráðs.
11. 1602027 - íþróttamannvirki: Áfangi 3, hönnun
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Páll Jóhann, Guðmundur, Magnús Andri og bæjarstjóri
Tillaga
Formaður bæjarráðs hefur lagt til að skipaður verði vinnuhópur sem fái það hlutverk að klára hönnun íþróttamannvirkis á grundvelli tillögu H. Hópurinn skal jafnframt útbúa verklýsingu og útboðsgögn.
Verkefni hópsins verður að vinna fullnaðarhönnun, verklýsingu og útboðgsgögn.
Jafnframt eru eftirfarandi tilnefndir í vinnuhópinn:
Gunnlaugur Hreinsson, B-lista
Jón Emil Halldórsson, D-lista
Atli Geir Júlíusson, D-lista
Þórir Sigfússon, G-lista
Magnús Andri Hjaltason, S-lista
Fulltrúi frá UMFG
Hermann Guðmundsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja
Starfsmaður nefndarinnar verði Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Samþykkt samhljóða
12. 1510110 - Kvikan: breytt nýting eða sala
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, Páll Jóhann, bæjarstjóri, Guðmundur, Jóna Rut, Kristín María og Magnús Andri
Bæjarráð fól bæjarstjóra þann 17. nóvember 2015 að auglýsa húsnæði Kvikunnar að Hafnargötu 12a til sölu. Tilboð barst í eignina 4. mars og fól bæjarráð bæjarstjóra að gera gagntilboð þann 8. mars. Fyrir fundinum liggur annað kauptilboð, ásamt umsögnum stjórnar Kvikunnar og umhverfis-og ferðamálanefndar.
Tillaga frá fulltrúa S-lista
Fulltrúi Samfylkingarinnar í bæjarstjórn hafnar alfarið sölu á Kvikunni og beinir því til bæjarstjórnar að hún vísi málinu aftur til stjórnar Kvikunnar sem taki málið upp að nýju.
Stjórninni verði gefnir að ca 2 mánuðir til að skila tillögum til bæjarstjórnar um hvernig þau sjái notkun og nýtingu hússins í náinni framtíð.
Magnús Andri Hjaltason
Bæjarstjórn hafnar kauptilboðinu með 5 atkvæðum, Páll Jóhann og Kristín María sitja hjá.
Tillaga
Lagt er til að Kvikan verði tekin af sölu.
Samþykkt samhljóða
Tillaga frá fulltrúum B-lista
Tillaga um að bæjarráð ásamt stjórn Kvikunnar verð falið að hefja strax viðræður við stjórn eldri borgara í Grindavík um aðkomu þeirra að Kvikunni.
Jafnframt verði þeim falið að leita eftir samstarfsaðilum við uppbyggingu á lóðinni til lengri tíma.
Fulltrúar B-lista
Tillaga
Fulltrúar D- og G- lista leggja fram tillögu um að bæjarráði verði falið að vinna málið áfram ásamt stjórn Kvikunnar
Fulltrúar D- og G-lista
Tillaga frá B-lista er felld með 4 atkvæðum gegn 2 atkvæðum B-lista. Magnús Andri situr hjá.
Tillaga frá fulltrúa S-lista er felld með 3 atkvæðum gegn atkvæði S-lista. Páll Jóhann, Kristín María og Ásrún sitja hjá.
Tillaga frá fulltrúum D-og G-lista er samþykkt samhljóða.
13. 1510091 - Málefni fatlaðra: Þjónustusamningur
Til máls tók: Hjálmar
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að þjónustusamningur um beingreiðslur til fatlaðs einstaklings verði samþykktur, og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2016 sem felur í sér tilfærslu á fjármagni innan bókhaldslykla deildar 02562 að fjárhæð 4.425.000 kr.
Samþykkt samhljóða
14. 1512073 - Miðgarður: Hönnun
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, bæjarstjóri og Kristín María
Hafnarstjórn samþykkir endurskoðað minnisblað frá Siglingasviði Vegagerðarinnar og leggur til við bæjarstjórn að fylgja því eftir að kostnaðartölur í Samgönguáætlun 2016-2020 verði í samræmi við minnisblaðið.
15. 1603068 - Fundargerðir: Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2016
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðir 254. og 255. fundar lagðar fram til kynningar.
16. 1603032 - Fundargerðir: Heklan 2016
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, bæjarstjóri og Guðmundur
Fundargerðir 48. og 49. fundar lagðar fram til kynningar
17. 1506146 - Fundargerðir: Reykjanes Geopark
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, bæjarstjóri, Ásrún, Magnús Andri og Páll Jóhann
Fundargerð 24. fundar stjórnar Reykjanes Geopark lögð fram til kynningar
18. 1603016 - Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2016
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, Magnús Andri og Jóna Rut
Fundargerðir 835. og 836. fundar lagðar fram til kynningar
19. 1601086 - Fundargerðir: Samtök sjávarútvegssveitarfélaga 2016
Til máls tóku: Hjálmar, bæjarstjóri og Kristín María, Páll Jóhann og Magnús Andri
Fundargerð nr. 26 er lögð fram til kynningar.
20. 1510040 - Fundargerðir: Þekkingarsetur Suðurnesja
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, Ásrún, Páll Jóhann og Kristín María
Fundargerð 17. fundar ásamt starfsáætlun ársins 2016 lagt fram til kynningar
21. 1602020F - Bæjarráð Grindavíkur - 1403
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, bæjarstjóri og Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.
22. 1603004F - Bæjarráð Grindavíkur - 1404
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, bæjarstjóri, Páll Jóhann og Magnús Andri
Fundargerðin er lögð fram.
23. 1603010F - Bæjarráð Grindavíkur - 1405
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, bæjarstjóri, Kristín María og Jóna Rut
Fundargerðin er lögð fram.
24. 1602019F - Frístunda- og menningarnefnd - 51
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, bæjarstjóri, Ásrún, Kristín María og Magnús Andri
Fundargerðin er lögð fram.
25. 1602018F - Félagsmálanefnd - 64
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Ásrún og Jóna Rut
Fundargerðin er lögð fram.
26. 1603007F - Félagsmálanefnd - 65
Til máls tóku: Hjálmar og bæjarstjóri
Fundargerðin er lögð fram.
27. 1603008F - Hafnarstjórn Grindavíkur - 442
Til máls tóku: Hjálmar og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram.
28. 1603001F - Fræðslunefnd - 50
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, Jóna Rut, bæjarstjóri og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram.
29. 1603009F - Skipulagsnefnd - 16
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Páll Jóhann og Magnús Andri
Fundargerðin er lögð fram.
30. 1602014F - Skipulagsnefnd - 15
Til máls tóku: Hjálmar og Jóna Rut og Magnús Andri
Fundargerðin er lögð fram.
31. 1602010F - Umhverfis- og ferðamálanefnd - 12
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, Kristín María, bæjarstjóri og Magnús Andri
Fundargerðin er lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:15.