Í Tónlistarskóla Grindavíkur er unnið mikið og gott starf sem hefur vakið athygli víða um land. Skólinn flutti síðastliðið haust í nýtt og glæsilegt húsnæði í Iðunni við Ásabraut og er nú öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar. Blaðamenn Víkurfrétta kíktu í heimsókn í skólann í Menningarvikunni og má sjá innslagið frá þeim hér að neðan:
Frétt vf.is um Tónlistarskólann:
Bylting í Tónlistarskóla Grindavíkur - Sérstakar eftirfylgni kennsluaðferðir vekja athygli
Algjör bylting hefur orðið á starfsemi Tónlistarskólans í Grindavík eftir að nýtt og glæsilegt húsnæði var tekið í gagnið. Skólinn hefur svo vakið mikla athygli fyrir sérstakar eftirfylgni kennsluaðferðir sem aðrir skólar hafa svo nýtt sér í kjölfarið. Í skólanum eru 75 nemendur í einkanámi og starfa 10 kennarar við skólann. Starfsemin er umfangsmikil og tengingin við grunnskólann og samfélagið í heild er mikil. Sjónvarp Víkurfrétta skoðaði skólann og starfsemina þar sem rætt var við Ingu Þórðardóttur skólastjóra eins og sjá má hér að neðan.