Yfir 50 krakkar mættu í Listasmiðju í Hópsskóla á laugardaginn undir yfirskriftinni Heitt og kalt. Listasmiðjan tókst glimrandi vel og var mikil sköpun í gangi undir öruggri stjórn Kristínar E. Pálsdóttur og Halldóru G. Sigtryggsdóttur og fleira eðal fólks sem hjálpaði til.
Þetta er þriðja árið í röð sem Listasmiðjan er starfrækt í Menningarvikunni. Sköpuð voru mjög frumleg listaverk með myndlist, tónlist og ljósum. Myndirnar tala sínu máli en óhætt er að segja að krakkarnir hafi notið sín í botn í Listasmiðjunni.