Þá er komið að lokadegi Menningarvikunnar 2016. Þar ber hæst DANSKUR dagur í Kvikunni með góðum gestum og svo mun Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður slá botninn í Menningarvikuna með tónleikum á Bryggjunni í kvöld.
Sunnudagur 20. mars
Kl. 10:00-17:00 Kvikan opin. Þrjár sýningar; Guðbergsstofa, Jarðorka og Saltfisksýningin.
Efri hæð: Halldór Ingi Emilsson sem búsettur er í Grindavík með málverkasýningu. Halldór stundaði myndlistanám við
Myndlistadeild Fjölbrautarskólans í Breiðholti og lauk stútentsprófi þaðan. Stundaði síðan nám í listfræði við Háskóla
Íslands árið 2005-6. Halldór hefur teiknað og málað frá barnsaldri. Verk hans eru gjarnan innblásin af Íslenskri náttúru.
Northern Light Inn. Málverkasýning Gunnellu. Guðrún Elín Ólafsdóttir sýnir verk sín en hún sækir efni mynda sinna í
íslenska náttúru og sögu, þar sem íslenska bóndakonan skipar aðalhlutverkið.
Kl. 11:00-12:00 Sunnudagaskóli Grindavíkurkirkju.
Kl. 13:00-17:00 Handverksfélagið Greip með sýningu á útskurði og málverkum í aðstöðu sinni að Skólabraut 8-10 (gömlu slökkvistöðinni) í nýjum sal. Allir velkomnir.
16:00 Kvikan. Danskur dagur á vegum Norræna félagsins í Grindavík, í tilefni Norræna dagsins á Íslandi. Kynning á danskri menningu og tónlist. Danska leik- og söng-konan og skemmtikraft-urinn Charlotte Böving ásamt undirleikaranum Pálma Sigurhjartarsyni skemmta gestum með söng og gríni sem þau fluttu fyrir Jóakim prins og Maríu prinsessu í Norræna húsinu í fyrra og sló í gegn. Rósa Signý Baldursdóttir
kennari segir frá möguleikum í dönskum lýðháskólum en hún hefur sótt námskeið í skóla á Skals og í Ry á Jótlandi. Þá verður kynning á Danmörku og hvað nágrannar okkar hafa upp á að bjóða. Aðgangur ókeypis og allir
velkomnir!
18:00 Bílabíó. Minja- og sögufélagið með ljósmyndasýningu á gafli fisverkunarfyrirtækisins Þróttar á horni Ægisgötu og Verbrautar, beint á móti sýningarglugga Þorbjarnar hf. Mynda-sýningin mun rúlla á gaflinum frá kl. 18 og fram í birtingu. Blanda og eldri og nýrri myndum.
Kl. 21:00 Bryggjan, tónleikar. Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður slær botninn í Menningarvikuna með tónleikum. Bjarmar hefur verið einn ástsællasti lagahöfundur og tónlistarmaður landsins og á marga stórsmelli og hefur gefið út 13 hljómplötur. Þekktustu og vinsælustu lög Bjartmars eru vafalaust Týnda kynslóðin, Hippinn, 15 ára á föstu og Járnkallinn. Ókeypis aðgangur.