Næsta miðvikudag kl. 18:00 - 21:00 verður skemmtilegt matreiðslunámskeið sem ber yfirskriftina Grænmeti - Salat - Krydd og kryddjurtir. Örn Garðars matreiðslumeistari á Soho Catering heldur námskeið í bragðmiklum grænmetisréttum, nemendur fá að spreyta sig sjálfir og taka afraksturinn með sér heim. Björk Sverrisdóttir heimilisfræðikennari verður til aðstoðar. Námskeiðið verður haldið í matreiðslustofu Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut. 20 manns komast á námskeiðið. Fyrstir koma - fyrstir fá. Skráning á bjorksv@hive.is (sendið nafn og kennitölu). Verð: 5.500 kr.