Síðustu vikur á Króki hafa litast af undirbúningi menningarviku þar sem verið var að skapa verk fyrir sýninguna okkar um allan leikskóla. Meðal þess sem unnið hefur verið með er tilfinningar, fjölbreytileikinn, endurnýtanlegur efniviður og tröll.
Kollý (tröllskessa), vinkona okkar úr Kyrrðardalnum hefur verið mjög áberandi í þessari vinnu. Einnig kom Helga Kristjánsdóttur bæjarlistamaður Grindavíkur kom til okkar í leikskólann og hafði yfirumsjón með gerð sameiginlegs málverks sem börnin unnu með henni. Er þetta verk hluti af sýningu Króks í Verslunarmiðstöðinni ásamt öðrum verkum eftir börnin. Eins og myndirnar sýna var mikill áhugi fyrir vinnunni og höfðu börnin og kennararnir gaman að sjá sameiginlega verkið taka á sig sífellt nýja mynd eftir því sem fleiri börn komu að því.