Blítt og létt hópurinn frá Eyjum međ gömlu og góđu Eyjalögin

  • Fréttir
  • 3. mars 2016

Grindvíkingar og Vestmannaeyingar hafa ávallt tengst sterkum böndum enda myndarleg sjávarútvegspláss, öflugir íþróttabæir og menningin blómstrar á báðum stöðum. Í Menningarvikunni fáum við góða heimsókn frá Vestmannaeyjum þegar sönghópurinn Blítt og létt mætir og verður með Eyjakvöld á Salthúsinu laugardaginn 12. mars næstkomandi.

Þar verða leikin Eyjalög og textum varpað á skjá fyrir almenning til að syngja með. Eyjalögin eru dýrmætur menningararfur sem halda verður á lofti til framtíðar. 

Sönghópurinn Blítt og létt var Bæjarlistamaður Vestmanneyja 2015. Hópinn skipa valinkunnir Vestmannaeyingar eins Finnur á nikkunni, Óli í Laufási, Simmi og Unnur í Viking, Diddi í Logum, Biggi Nielsen, Davíð í Tölvun, Grímur kokkur, Páll Viðar, Tóti í Dans á Rósum og Helgi Tórshamar. Fjölmargir aðrir valinkunnir einstaklingar hafa síðan leikið og sungið með hópnum og aldrei að vita nema Grindvíkingar verði þar á meðal.

Hópurinn hefur staðið fyrir svokölluðum Eyjakvöldum mánaðarlega í nokkur ár. Ávallt hefur verið húsfyllir. Að sögn Davíðs Guðmundssonar, eins af forsprökkum Blítt og létts, myndast ávallt góð stemmning. Allir geta sungið með því textinn er á skjánum og því getur hver og einn sungið með sínu nefi. Inn á milli eru sagðar skemmtilegar Eyjasögur sem tengjast lögunum á einn eða annan hátt.

Sönghópurinn hefur slegið í gegn undanfarin ár og spilað í Hörpunni, í ráðherraveislu og fleiri opinberum stöðum. Eyjalögin, t.d perlur þeirra Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í bæ eru dýrmætur menningararfur sem Eyjamenn eru duglegir að halda ál ofti. Blítt og létt hefur lagt sín lóð á vogarskálarnar til að svo megi verða. Færeyingar hafa fengið að njóta ljúfra tóna hópsins og í náinni framtíð stendur til að halda vestur um heim og kynna Eyjalögin þar.

Miðaverð er 2.500 og er selt við innganginn.

Það er alltaf fjör í Eyjum þegar Blítt og létt hópurinn tekur Eyjalögin. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir