Nýtt GrindavíkurApp hefur verið tekið í notkun. Ungmennaráð Grindavíkur hefur sá um undirbúnings- og hugmyndavinnu í samvinnu við Sigurpáll Jóhannsson forritara. Um grafík sá Gunnar Júlíusson. Hægt er að nálgast appið í Play Store fyrir tæki sem keyra á Android-stýrikerfi og iTunes-verslun Apple. Hugmyndin að GrindavíkurAppinu kom á fundi Ungmennaráðs sem vildi fá aðgengilegt app fyrir Grindavík þar sem hægt væri að slá nokkrar flugur í einu höggi. Lagt var upp með eftirfarandi þætti:
• Viðburðir: Hafa gott yfirlit yfir alla viðburði í bænum. Hægt er að velja þá viðburði sem þú hefur áhuga á og applið lætur þig vita með fyrirvara svo þú gleymir þér ekki.
• Fréttir: Allir fréttir á heimasíðu Grindavíkurbæjar fara beint inn á appið.
• Stofnanir: Helstu upplýsingar um stofnanir í bænum. Aðgengilegt og þægilegt.
• Hafðu samband: Hægt að hafa beint samband við Grindavíkurbæ og stofnanir hans.
• Atvinna: Upplýsingar um atvinnu sem auglýst er hverju sinni.
• Samfélagsmiðlar: Geta farið beint inn á samfélagsmiðla sem tengjast bænum.
• Veður: Hvernig er veðrið í dag og næstu daga? Beintenging.
• Ferðaþjónusta: Þeir sem hafa áhuga að fara til Grindavíkur geta fundið helst upplýsingar um ferðaþjónustu í Grindavík
(beintengt við www.visitgrindavik.is).
• Bæjarmál: Þeir sem hafa áhuga á bæjarmálefnum geta fengið upplýsingar um skipan nefnda og fundargerðir.
• Samgöngur: Helstu upplýsingar um samgöngur til og frá Grindavík.
Dagskrá Menningavikunnar 12.-20. mars verður í GrindavíkurAppinu.
Appið verður í sífelldri þróun og því er mikilvægt að Ungmennaráðið fái viðbrögð svo hægt sé að lagfæra vankanta og einnig ef einhverjir eru með góðar hugmyndir til að hafa þarna inni.
Bestu kveðjur
Ungmennaráð