Mikill metnađur í dagskrá Menningarviku Grindavíkur 12.-20. mars

  • Fréttir
  • 2. mars 2016

Menningarvika Grindavíkur verður nú haldin í áttunda sinn og að vanda hefur mikill metnaður verið lagður í dagskrána og líklega aldrei meiri en núna. Menningarvikan verður haldin 12.-20. mars n.k. þannig að Safnahelgin er einnig hluti af henni og verður ókeypis aðgangur í Kvikunni. Undirbúningur er á lokastigi, m.a. er búið að velja Bæjarlistamann Grindavíkur, undirbúa fjölmörg námskeið í febrúar, mars og apríl og bóka ýmsa viðburði í Menningarvikunni sjálfri og þá verður stór og mikil Handverkshátíð í Gjánni. Fjölbreytileikinn væri í hávegum í ár. Dagskrá Menningarvikunnar verður birt í dag á heimasíðu bæjarins, í Járngerði sem dreift verður í öll hús í lok vikunnar í nýja GrindavíkurAppinu sem kynnt verður í dag.

Menningarvikunni hefur vaxið ásmegin og viðburðir hafa aldrei verið fleiri en í ár. Á meðal tónleika sem búið er að bóka er hópur tónlistarfólks í Grindavík undir stjórn Sólnýjar Pálsdóttur sem ætlar að spila klassísk rokklög, á meðal flytjenda eru Ellert Heiðar Jóhannsson úr The Voice og Bergur Ingólfsson leikari.

Eyjahópurinn Blítt og létt kemur og leikur öll Eyjalögin í þjóðhátíðarstíl, tónleikar verða til heiðurs Sigvalda Kaldalóns, Bjartmar Guðlaugsson verður á Bryggjunni,  Norræna félagið verður með danska dagskrá þar sem leik- og söngkonan Charlotte Böving og Rósa Signý Baldursdóttir kennari verða gestir, bókasafnið verður með Grindavíkurkvöld þar Vísiskórinn og ýmsir hagyrtir heimamenn munu m.a. troða upp.

Þá verða Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars og Jógvan Hansen með tónleika undir yfirskriftinni Við eigum samleið.

Óp-hópurinn mun flytja fallega tónlist á Galatónleikum í sal tónlistarskóla Grindavíkur. Þá verður vegleg setningarhátíð í Grindavíkurkirkju þar sem barnakór Grindavíkur frá 1977-1981 mun m.a. koma fram ásamt núverandi barnakór og nemendum tónlistarskólans.

Þá verða ýmsar sýningar, meðal annars verður safnsýning úr listasafni Grindavíkurbæjar og þá verða fimm konur hjá Handverksfélaginu Greip með málverkasýningu. Á meðal annarra sem sýna eru Fannar Þór Bergsson leirlistamaður, Hjalti Parelíus popplistamaður, Rúnar Þór Þórðarson málari, Guðni Már Henningsson útvarpsmaður og málari, Halldór Ingi Emilsson málari og þá verða nemendur á leikskólum bæjarins og grunnskólanum með sýningar í verslunarmiðstöðinni. 

Jafnframt frumsýnir unglingastig Grunnskólans Grindavík tvö leikrit og þá verður ljóðakvöld, fjölmörg námskeið, fyrirlestrar, myndasýningar í Miðgarði og fyrirlestrar t.d. um Strandminjar í hættu í Grindavík. Þá munu leikskólarnir, grunnskólinn og fjölmargir aðrir aðilar verða með ýmsa viðburði í Menningarvikunni sem of langt mál er að telja upp hér.

Í tengslum við undirbúning Menningarvikunnar í ár standa ýmsir aðilar standa fyrir námskeiðum í febrúar, mars og apríl. Þar er að finna fjölbreytt framboð af námskeiðum fyrir alla aldurshópa, m.a. í handverki, sköpun, listum og mat, sem Suðurnesjamenn eru hvattir til að kynna sér vel og endilega og nýta tækifærið og skrá ykkur og taka þátt. Menningarvikan niðurgreiðir námskeiðin og því eru þau á hagstæðu verði. Bent er á möguleika á styrkjum frá stéttarfélögum.

Rétt er að minna á Handverkshátíð í Gjánni sem verður í Menningarvikunni, sunnudaginn 13. mars en þar verður að finna rjómann af grindvísku handverki, í sem víðasta skilningi þess orðs, auk þess sem aðilar víðar á Reykjanesinu munu sýna og selja handverk sitt. 

Helga Kristjánsdóttir listmálari var verið útnefnd Bæjarlistamaður Grindavíkur 2016 af frístunda- og menningarnefnd. Verðlaunin verða afhent við setningu Menningarviku Grindavíkur.

Efsta mynd: Ellert Jóhannsson sem sló í gegn í The Voice er einn af söngvurum á grindvískum rokktónleikum í Menningarvikunni.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir