Dagur tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur í Tónlistarskólanum í Grindavík þann 13. febrúar 2016 milli kl. 14:00 og 16:00.
Heitt verður á könnunni og gestir og gangandi hvattir til að kíkja við og skoða skólann og kynna sér starfsemi hans.
Nemendur tónlistarskólans spila fyrir gesti á heila og hálfa tímanum.
Allir hjartanlega velkomnir!