Skráning í Blue Lagoon Challenge 2016 fjallahjólakeppnina hófst í dag. Nýrri og glæsilegri heimasíðu hefur verið hleypt af stokkunum en skráning fer eingöngu fram á netinu. Bláa Lóns Áskorunin er stærsta fjallahjólakeppni ársins á Íslandi. Það er áskorun en ekki síður afrek, að ljúka hinni 60 kílómetra leið, frá Völlunum í Hafnarfirði og að Svartsengi í Grindavík.
Smelltu hér til að taka þátt.