459. fundur Bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 26. janúar 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson forseti, Guðmundur L. Pálsson Bæjarfulltrúi, Kristín María Birgisdóttir 1. varaforseti, Páll Jóhann Pálsson aðalmaður, Marta Sigurðardóttir 2. varaforseti, Jóna Rut Jónsdóttir Bæjarfulltrúi, Ásrún Helga Kristinsdóttir Bæjarfulltrúi, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. 1511060 - Breyting á aðalskipulagi: fiskeldi á Stað
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og fór hann yfir málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, bæjarstjóri, Guðmundur, Páll Jóhann, Jóna Rut og Kristín María
Tekin fyrir tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 ásamt umhverfisskýrslu. Breytingatillagan fól í sér að iðnaðarsvæði i7 stækki um 17,7 ha. og fari yfir svæði nr. 105 á náttúruminjaskrá. Athugasemdir bárust frá Náttúrufræðistofnun. Til að koma til móts við þær athugasemdir leggur skipulagsnefnd til breytingu á tillögunni sem felur í sér að stækkun iðnaðarsvæðisins nái aðeins yfir það svæði fyrirhugað er undir fiskeldisker. Uppdráttur með þeirri tillögu liggur fyrir fundinum. Tillagan var kynnt á opnu húsi þann 22. janúar sl. á bæjarskrifstu Grindavíkurbæjar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra að senda Skipulagsstofnun breytinguna, ásamt umhverfisskýrslu, skv. 3. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýsa hana skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir.
2. 1501182 - Deiliskipulag: fiskeldi á Stað
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og fór hann yfir málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur og Páll Jóhann
Deiliskipulagstillaga ásamt umhverfisskýrslu fiskeldis á Stað unnin af AVH arkitektum dagsett í október 2015 tekin fyrir.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagið verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samhliða aðalskipulagsbreytingu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Skipulagsnefndar með áorðnum breytingum.
3. 1601014 - Deiliskipulag hafnarsvæðis: Breyting
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og fór hann yfir málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Páll Jóhann, Marta, bæjarstjóri, Kristín María og Jóna Rut
Tekin fyrir óveruleg breyting á deiliskipulagi Hafnargata-Ránargata. Breytingin tekur til gatnamóta Ránargötu og Hafnargötu og stækkun á byggingarreit við Seljabót 3.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 og grenndarkynnt fyrir eigendum Seljabót 1.
Bæjarstjórn samþykkir breytinguna samhljóða en leggur áherslu á að ekki verði farið í framkvæmdir fyrr en tryggt er að stór ökutæki komist vandræðalaust um gatnamótin.
4. 1501193 - Deiliskipulag Víðihlíð og nágrenni
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og fór hann yfir málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, Guðmundur, Marta, Páll Jóhann, Kristín María og Jóna Rut
Tekin fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Víðihlíð og nágrenni. Deiliskipulagssvæðið hefur verið stækkað og afmarkast nú af Austurvegi til suðurs, Hópsbraut til austurs og opnu svæði og vesturmörkum lóðar dvalarheimilis aldraðra, Víðihlíðar, til vesturs. Gert er ráð fyrir mismunandi stærðum íbúða, bæði í fjölbýlis- og sérbýlishúsum. Í fjölbýlishúsum er reiknað með u.þ.b. 60-100 m2 stórum íbúðum og geta þær verið með eða án bílgeymslu. Sérbýli geta verið annað hvort stakstæð eða tengd sem par- eða raðhús. Þar er heimilt að breyta bílageymslum milli húsa í íbúð, ef minni eftirspurn verður eftir bílageymslum. Einnig er gert ráð fyrir nýbyggingum við núverandi dvalarheimili aldraðra, Víðihlíð. Þannig ætti að vera unnt að uppfylla þarfir og kröfur sem flestra tilvonandi íbúa.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Skipulagsnefndar
5. 1509119 - Iðnaðarsvæði Eyjabakka: breyting á deiliskipulagi.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og fór hann yfir málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar
Tekin fyrir eftir grenndarkynningu tillaga að breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis við Eyjabakka. Á kynningartíma barst ein athugasemd frá eigendum Tangasund 4-6. Ekki er gerð efnisleg athugasemd við grenndarkynninguna heldur snúa athugasemdir að frágangi lóðar og viðbótarbreytingu á deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að sviðsstjóra verði falin breytingin til fullnaðarafgreiðslu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Skipulagsnefndar.
6. 1601061 - Umsókn um byggingarleyfi: Viðbygging, Seljabót 3
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og fór hann yfir málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Páll Jóhann, Jóna Rut og Kristín María
Vélsmiðja Grindavíkur óskar eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Seljabót 3. Erindinu fylgja teikningar frá Þorleifi Björnssyni.
Skipulagsnefnd leggur til að viðbygging A verði samþykkt með fyrirvara um þinglýstan lóðarleigusamning vegna aðkomu við vesturinngang og staðfestri breytingu á deiliskipulagi. Skipulagsnefnd leggur til að viðbyggingu B verði hafnað þar sem byggingin samræmist ekki gildandi deiliskipulagi.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar.
7. 1509026 - Umsókn um byggingarleyfi: Lokahús í Arfadalsvík
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og fór hann yfir málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og Guðmundur
Erindi frá HS Orku hf. þar sem óskað eftir byggingarleyfi fyrir 50 m2 lokahúsi við Arfadalsvík. Erindinu fylgja teikningar dagsettar 10.9.2015 unnar af OG arkitektastofu. Einnig fylgir umsókn um stofnun lóðar.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um þinglýst lóðarblað. Skipulagsnefnd bendir á að byggingarleyfi eru gefin út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargöng berast.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Skipulagsnefndar
8. 1601031 - Umsókn um framkvæmdaleyfi: Loftnet við dreifistöðvar.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og fór hann yfir málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Guðmundur, Marta, Páll Jóhann, Jóna Rut og bæjarstjóri
HS veitur hf. óska eftir framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu á möstrum við DRE 118 Austurveg, DRE 101 Túngötu, DRE101 Vigdísavelli og DRE101 Laut.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt.
Tillaga
Lagt er til að málinu verði frestað til næsta bæjarstjórnarfundar.
Samþykkt samhljóða
9. 1512144 - Staðarsund 1: umsókn um byggingarleyfi
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og fór hann yfir málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og Guðmundur
HH smíði óska eftir byggingarleyfi fyrir 774,2 m2 iðnaðarhúsnæði við Staðarsund 1. Í erindinu er einnig óskað eftir stækkun á byggingarreit um 46 sentimetra til suðurs.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Skipulagsnefnd bendir á að byggingarleyfi eru gefin út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Skipulagsnefndar
10. 1512012 - Sala á Óla á Stað: boð um neyta forkaupsréttar skv. 12. gr. laga um stjórn fiskveiða
Páll Jóhann vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún og Guðmundur
Svarbréf lögmanns Loðnuvinnslunnar hf. lagt fram, þar sem áréttaður er sá skilningur Loðnuvinnslunnar að forkaupsréttur Grindavíkurbæjar á Óla á Stað GK-99 sé fallinn niður.
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar áréttar að afgreiðslu málsins var frestað vegna tilkynningar um að fallið hafi verið frá sölutilboðinu. Stakkavík hf. tilkynnti 14. desember 2015 að félagið hefði fallið frá tilboðinu þar sem samþykki stjórnar Loðnuvinnslunnar lá ekki fyrir.
Tillaga
Bæjarstjórn leggur til að bréfinu verði svarað, þar sem Grindavíkurbær krefst þess að þegar lokaniðurstaða liggur fyrir í ágreiningsmáli aðila, fái sveitarfélagið senda tilkynningu þess efnis með sannanlegum hætti, og fái frá þeim tíma fjögurra vikna frest til að taka afstöðu til forkaupsréttins, enda sé um að ræða gildan samning. Telur Grindavíkurbær að slík meðferð málsins væri í samræmi við ákvæði 3. og 4. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.
Samþykkt samhljóða með 6 atkvæðum.
11. 1512123 - Beiðni um stuðning á deild
Til máls tóku: Hjálmar og Kristín María
Óskað er eftir stuðningi á Leikskólanum Laut sem nemur 50% stöðu stuðningsfulltrúa og er gert ráð fyrir að kostnaðarauki verði 2.200.000 kr. á ári.
Bæjarráð samþykkir erindið og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 2.200.000 kr. á launalið Leikskólans Lautar. Fjármögnun verði af handbæru fé.
Samþykkt samhljóða
12. 1509034 - Félagsleg leiguíbúð: kauptilboð
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, bæjarstjóri, Guðmundur, Kristín María og Páll Jóhann
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 8. september að selja leigjendum íbúðar 010203 að Staðarhrauni 24a íbúðina með vísan til ákvæðis til bráðabirgða í reglum Grindavíkurbæjar um framkvæmd sölu félagslegra íbúða.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að undirrita kauptilboðið og leggja kaupsamning fyrir bæjarstjórn til samþykktar. Endanleg afgreiðsla kaupsamnings tafðist, en samningurinn er nú lagður fram til samþykktar.
Bæjarstjórn staðfestir samninginn samhljóða
13. 1510087 - Íþróttafélagið NES: Samstarfssamningur
Til máls tóku: Hjálmar og Kristín María
Samstarfssamningur við Íþróttafélagið Nes lagður fram þar sem félagið mun standa fyrir bocciaæfingum einu sinni í viku í Grindavík frá og með janúar 2016. Fjármögnun samningsins er tryggð í fjárhagsáætlun 2016.
Frístunda-og menningarnefnd leggur til að samningurinn verði samþykktur.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða
14. 1512113 - Víkurbraut 58 ehf.: beiðni um breytingu á veðrétti láns frá Grindavíkurbæ
Til máls tóku: Hjálmar, bæjarstjóri, Páll Jóhann, Kristín María og Guðmundur
Víkurbraut 58 ehf. óskar eftir heimild til að auka veðheimild á fasteignina Víkurbraut 58. Í því felst að verðtryggt tryggingabréf Grindavíkurbæjar flyst af 2. veðrétti á 3. veðrétt.
Bæjarstjórn samþykkir erindið samhljóða
15. 1601087 - Frístunda- og menningarnefnd: Breyting á fulltrúa G-lista
Til máls tóku: Hjálmar og Kristín María
G-listi gerir breytingu á fulltrúa sínum í frístunda-og menningarnefnd.
Aníta Sveinsdóttir verður formaður nefndarinnar í stað Kristínar Maríu Birgisdóttur, sem verður varamaður.
Samþykkt samhljóða
16. 1512010F - Frístunda- og menningarnefnd - 49
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Jóna Rut og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram.
17. 1601073 - Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2016
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Guðmundur, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð nr. 466 er lögð fram.
18. 1601086 - Samtök sjávarútvegssveitarfélaga: Fundargerðir 2016
Til máls tóku: Hjálmar, bæjarstjóri og Páll Jóhann
Fundargerð nr. 25 er lögð fram.
19. 1601007F - Bæjarráð Grindavíkur - 1399
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Páll Jóhann, bæjarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerðin er lögð fram.
20. 1512008F - Félagsmálanefnd - 60
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, bæjarstjóri, Ásrún, Marta, Jóna Rut og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram.
21. 1601009F - Félagsmálanefnd - 61
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Ásrún, Marta, bæjarstjóri, Guðmundur, Jóna Rut og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram.
22. 1601008F - Umhverfis- og ferðamálanefnd - 10
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, Marta, Kristín María, Ásrún, bæjarstjóri og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram.
23. 1601006F - Hafnarstjórn Grindavíkur - 441
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Kristín María og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram.
24. 1512004F - Skipulagsnefnd - 12
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Ásrún og Marta
Fundargerðin er lögð fram.
25. 1601005F - Skipulagsnefnd - 13
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Ásrún og Marta
Fundargerðin er lögð fram.
26. 1512006F - Hafnarstjórn Grindavíkur - 440
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann og Kristín María, Marta
Fundargerðin er lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:00.