Í tilefni Menningarvikunnar 12.-20. mars n.k. verður grindvísk handverkshátíð í Gjánni sunnudaginn 13. mars frá kl. 13:00-18:00. Mikill áhugi er fyrir hátíðinni og hafa verið haldnir tveir undirbúningsfundir og stýrihópur komið að skipulaginu.
Reglur:
• 1 borð á hvern aðila, ókeypis. Alls eru 27 borð í boði (hugsanlega hægt að fjölga ef aðsókn er mikil). Hægt er að sýna og selja. Borðin eru á staðnum (þarf ekki að taka borð með sér). Sýnendur sjá að öðru leyti um sig sjálfir. Grindvískt handverksfólk gengur fyrir með pláss.
• Pantanir á borðum verða í gegnum googledocs frá 1. febrúar kl. 12:00 (nánari upplýsingar sendar út síðar í pósti og birtar á heimasíðu/facebooksíðu bæjarins).
• Skráningafrestur til 1. mars.
• Ókeypis aðgangur inn á markaðinn.
• Aðilar í Grindavík sem framleiða matvöru verður boðið að vera með smakk/sölu líka.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, netfang thorsteinng@grindavik.is, sími 420 1100.