Opna Grindavíkurmótið í pílukasti verður haldið laugardaginn 9. janúar í Gjánni, Austurvegi 1-3. Keppt verður í sameiginlegum flokki karla og kvenna í riðlakeppni. Fyrirkomulag riðlakeppninnar virkar þannig að þeir sem lenda í efri hluta síns riðils fara í A úrslit. Þeir sem lenda í neðri hluta í sínum riðli mætast síðan í B úrslitum. Úrslit ráðast með beinum útslætti í báðum flokkum, A og B.
Markmiðið er að allir keppendur komist upp úr riðlum og fara áfram í úrslit.
Um er að ræða tvö mót í einu stóru móti sem að þessu sinni verður ,,ósítað".
Bikar verður veittur fyrir fyrstu þrjú sætin í hvorum flokki ásamt verðlaunum fyrir hæsta útskot, fæstar pílur og flest 180. Einnig veitum við aukaverðlaun á meðan á leik stendur, 2 bjórar fyrir að ljúka legg á búlli, 2 bjórar fyrir að taka útskot 100 eða hærra og 2 bjórar fyrir hvert 180! Einnig ætlum við að vera með aukaverðlaun með aðalverðlaununum.
Veitingar verða í boði á staðnum og er matur innifalinn í gjaldi mótsins.
Húsið opnar kl. 11:00, skráningu líkur kl. 12:00, mótið hefst kl. 13:00 og áætluð mótslok verða í kringum 21:00. Skráning er hjá Gústa í síma 897-6354 og á e-mail gunnarmg@sjova.is
Þátttökugjald er kr 3.500. ATH að EKKI verður posi á staðnum.