Tćkni-LEGO-námskeiđ í Grindavík

  • Fréttir
  • 27. nóvember 2015

Tækni-LEGO-námskeið verður í Grunnskóla Grindavíkur þriðjudagana: 1. des, 8. des og 15. des. Námskeiðið verður tvískipt:

 

  • 1.- 3. bekkur kl: 13:20-14:40
  • 4.-7. bekkur kl: 14:40-16:00

 

Staðsetning:

  • Haldið í Hópsskóla.

Uppbygging námskeiða:

  • Á námskeiðinu verða um 100 kíló af tækni-LEGO-kubbum. Kennslan er einstaklingsmiðuð og kennt er að nota t.d. tannhjól, gírun, mótora o.f.l. og fá allir aðstoð við að skapa sín eigin módel.
  • Hámarksfjöldi í hvern hóp er: 15 (Ef hóparnir fyllast verður reynt að bæta við öðru námskeiði.)

Leiðbeinandi:

  • Nafn: Jóhann Breiðfjörð.
  • Starfaði í 5 ár sem hönnuður, hugmyndasmiður og ráðgjafi hjá tæknideild danska leikfangafyrirtækisins LEGO.

Verð:

  • 4.500 kr. Krafa birtist í heimabanka á kennitölu greiðanda áður en námskeiðið hefst.
  • 1.000 kr afsláttur er veittur þeim sem eru skráð á frístundaheimilið á sama tíma og námskeiðið stendur yfir. Afslátturinn dregst frá námskeiðsgjaldinu.

Nánari upplýsingar og skráning:
nyskopun.net (Ef hlekkurinn virkar ekki vinsamlega sláið síðunafninu beint inn í vafrarann)


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir