11. fundur skipulagsnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 16. nóvember 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Sigurður Guðjón Gíslason formaður, Þórir Sigfússon aðalmaður, Marta Sigurðardóttir aðalmaður, Ólafur Már Guðmundsson aðalmaður, Björgvin Björgvinsson varamaður og Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Fundargerð ritaði: Ármann Halldórsson, Sviðsstjóri skipulags- og umhvefissviðs.
Dagskrá:
1. 1511060 - Fiskeldi á Stað: Breyting á aðalskipulagi.
Tekin fyrir óveruleg breyting á aðalskipuagi Grindavíkur 2010-2030. Breytingin felst í því að iðnaðarsvæði i7 er stækkað úr 113,8 ha í 131,5 ha til austurs. Breytingin nær yfir raskað svæði að hluta. Samhliða aðalskipulagsbreytingunni verður auglýst deiliskipulag fiskeldis á Stað.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarsjtórn að breytingin verði samþykkt skv 2. mgr. 36. gr.Skipulagslaga nr. 123/2010.
2. 1501182 - Deiliskipulag fiskeldis á Stað.
Deiliskipulagstillaga ásamt umhverfisskýrslu fiskeldis á Stað unnin af AVH arkitektum dagsett í október 2015 ásamt greinargerð vegna athugasemda og umsagna tekin fyrir. Við fyrri auglýsingu tillögunnar komu athugasemdir frá Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun og siglingasviði Vegagerðarinnar. Þeim athugasemdum ásamt tillögu að svörum og viðbrögðum Grindavíkurbæjar er að finna í meðfylgjandi greinargerð vegna athugasemda og umsagna.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði svör og viðbrögð vegna ofangreindra athugasemda og að skipulagið verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samhliða aðalskipulagsbreytingu.
3. 1511071 - Deiliskipulag Stamhólsvegar: Breyting
Tekin fyrir breyting á deiliskipulagi Stamphólsvegar í Grindavík. Breytingin felur í sér að Stamphólsvegur 3 verði skipt upp í tvær lóðir og að reist verði 4 hæða fjölbýlishús. Lóð við Stamphólsveg 3 verður 3.493 m2. Á nýrri lóð Stamphólsveg 5 verður leyfilegt að reisa 4. hæða fjölbýlishús með hámarkshæð 12 m. Skipulaginu fylgir skýringaruppdráttur.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagið verði samþykkt með áorðnum breytingum og auglýst skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4. 1511066 - Umsókn um lóð: Skarfasund 5 og 7
Erindi frá Hópsnesi ehf. Kt. 470265-0199. Í erindinu er óskað eftir lóðum við Skarfasund 5 og 7.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að umsóknin verði samþykkt fyrir Skarfasund 5 en leggur til að Hópsnesi verði útlutað lóð nr. 3 í stað nr. 7 óski Hópsnes þess.
5. 1511054 - Víkurbraut 8: Umsókn um stækkun lóðar
Erindi frá Þórkötlu ehf., kt. 440407-1290. Í erindinu er óskað eftir breytingum á lóðamörkum við Víkurbraut 8 og Bjarg landnr. 129134. Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og vísar því í deiliskipulagsgerð.
6. 1511055 - Austurhóp 2: Umsókn um srækkun lóðar
Erindi frá Hjálmtý Sigurðssyni. Í erindinu er óskað eftir því að lóðarmörk við Austurhóp 2 verði stækkuð til norðurs að götu. Skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem það samræmist ekki deiliskipulagi.
7. 1511065 - Slökkvilið Grindavíkur: Brunavarnaráætlun 2016-2021
Tekin fyrir. Málinu frestað.
8. 1511064 - Slökkvilið Grindavíkur: Eldvarnareftirlit
Lagt fram.
9. 1511067 - Vélsmiðja Grindavíkur: fyrirspurn um stækkun
Erindi frá Vélsmiðju Grindavíkur ehf. kt. 590689-1739. Í erindinu er óskað eftir áliti nefndarinnar á stækkun á byggingarreit Seljabótar 3 og lóðar um 3 m. í vestur. Skipulagsnefnd tekur vel í erindið en bendir á að breyta þarf deiliskipulagi.
10. 1511074 - Umsókn um framkvæmdaleyfi: kvikmyndataka við Kleifarvatn
Erindi frá Bergsveini Jónssyni kt. 310567-3969. Í erindinu er óskað eftir leyfi til kvikmyndatöku við Kleifarvatn og Krísuvíkurberg. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt. Skipulagsnefnd bendir á að Krísuvíkurberg er í lögsögu Hafnarfjarðar
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:40.