Um er að ræða nýja 75% stöðu við skólann frá 1. janúar 2016. Helstu verkefni sérkennslustjóra er að bera ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar í leikskólanum ásamt leikskólastjóra og fleiri verkefnum samkvæmt starfslýsingu Félags leikskólakennara. Menntunarkröfur eru að viðkomandi sé leikskólakennari og með M.ed. í sérkennslufræðum.
Þar sem um nýtt starf er að ræða verður áskorun fólgin í því að þróa nýju stöðuna að stefnu og starfsháttum skólans í samráði við stjórnendur.
Í Heilsuleikskólanum Króki er lögð rík áhersla á jákvæðan skólabrag og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir og því leitum við að samstarfsfólki sem:
• Er tilbúið að tileinka sér starfsaðferðir leikskólans
• Hefur áhuga á heilsueflingu, umhverfismennt og umhyggjusömum samskiptum
• Er tilbúið að taka þátt í öflugri skóla- og starfsþróun
• Er stundvíst, samviskusamt og leggur sig fram um að velja sér jákvæð viðhorf í dagsins önn
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um.
Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á
http://www.skolar.is/umsoknir/ (hnappur fyrir neðan leikskólaumsóknir)
Nánari upplýsingar veita:
Hulda Jóhannsdóttir skólastjóri eða Bylgja Héðinsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 426-9998.