Eldvörp: Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis og álit Skipulagsstofnunar

  • Stjórnsýsla
  • 5. nóvember 2015

Rannsóknaborannir í Eldvörpum í Grindavík

Í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123 frá 2010 veitti Grindavíkurbær, þann 27.10.2015, HS orku framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknaborunum í Eldvörpum sem liggur innan sveitarfélagamarka Grindavíkur. Borteigar munu liggja við þjónustuvegi á Eldvarparsvæðinu. Skipulagsnefnd Grindavíkur samþykkti umsókn HS orku um framkvæmdaleyfið á fundi nefndarinnar þann 19. október 2015 og bæjarstjórn Grindavíkur á fundi sínum þann 27. október 2015. Álit Skipulagsstofnunar um umhverfisáhrif framkvæmdarinnar, skv. ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106 frá 2000, liggur fyrir í áliti Skipulagsstofnunar frá 22. september 2014. Í álitinu er fjallað um „Rannsóknarboranir í Eldvörpum, Grindavík"

Framkvæmdaleyfið og tengd gögn má nálgast á heimasíðu Grindavíkurbæjar undir vefslóðinni www.grindavik.is eða hjá skipulagsfulltrúa á netfangið armann@grindavik.is eða í síma 4201100

Í samræmi við 4. gr. laga nr. 130 frá 2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, er vakin athygli á því að þeir sem eiga lögvarinna hagsmuna að gæta sem og umhverfis- og útivistarsamtök með minnst 30. félaga, enda samrýmist tilgangi samtakanna að gæta þeirra hagsmuna sem kæran lýtur að, geta kært útgáfu leyfisins innan mánaðar frá birtingu auglýsingar í lögbirtingablaðinu sem er fyrirhuguð 3. nóvember nk. til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík, sjá nánar heimasíðu nefndarinnar uua.is.

Grindavík, 31. október 2015.

F.h. Grindavíkurbæjar,
Ármann Halldórsson
Skipulagsfulltrúi

 

Fylgiskjöl og ítarefni:

Álit Skipulagsstofnunar

Matsskýrsla Eldvarpa

Kortahefti matsskýrslu

Verklag og leiðbeiningar

Verklag fráveitu

Umsókn um framkvæmdaleyfi - rannsóknarborarnir í Eldvörpum


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum