Í gær var félagsmiðstöðvardagurinn haldinn um allt land, meðal annars í félagsmiðstöðinni Þrumunni. Foreldrum, gömlum Þrumurum og reyndar öllum bæjarbúum var boðið að koma í heimsókn. Gaman var að sjá þá foreldrana sem gáfu sér tíma til að mæta og gripu í spil, borðtennis og skoðuðu gamlar myndir úr starfi Þrumunnar. Dregin voru fram gömul myndaalbúm og myndir hengdar upp á vegg. Unglingarnir mættu mjög vel í gærkvöldi en góð aðsókn hefur verið í Þrumunni í haust.