1395. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 3. nóvember 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson varaformaður, Kristín María Birgisdóttir formaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. 1510024 - Ungmennaráð: Breyting á samþykktum
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynnti málið.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
2. 1509069 - Félag eldri borgara í Grindavík: Samstarfssamningur 2016-2018
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynnti samninginn.
Bæjarráð vísar samningum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
3. 1503148 - Starfsmannamál: Reglur um árshátíð o.fl.
Framhald frá fundi 1393.
Athugasemdir og ábendingar slökkviliðsmanna lagðar fram.
Bæjarstjóra falið að gera breytingar á tillögunni og leggja fyrir bæjarráð til afgreiðslu.
4. 1505080 - Starfsmannastefna Grindavíkurbæjar: breytingatillaga vegna heilsustyrkja
Framhald frá fundi 1383.
Bæjarstjóri leggur fram breytingatillögu við kafla um heilsueflingu í Starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar. Markmið breytinganna er að koma betur til móts við mismunandi heilsueflingu starfsmanna. Jafnframt er gerð tillaga um nýjan kafla um samgöngusamninga.
Afgreiðslu frestað.
5. 1501040 - Tillaga um stefnumótun á þjónustusvæði Suðurnesja um málefni fatlaðs fólks - Framhaldsmál 2015
Úrskurður ráðherra vegna beiðni sveitarfélaganna á Suðunesjum um undanþágu frá íbúafjöldamörkum þjónustusvæða lagður fram.
Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með að undanþágubeiðni frá íbúafjöldatakmörkunum skuli hafnað og úrskurðað um að sveitarfélögin á Suðurnesjum skuli sameiginlega mynda eitt þjónustusvæði. Ljóst er að sveitarfélögin á Suðurnesjum þurfa að vinna sameiginlega að lausn málsins og fá til þess leiðsögn velferðarráðuneytisins.
6. 1510105 - Fjáreigendafélag Grindavíkur: Ósk um styrk til uppgræðslu í Krýsuvíkurhólfi
Fjáreigendafélag Grindavíkur óskar eftir styrk til uppgræðslu í Krýsuvíkurhólfi vorið 2016.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði 50.000 kr. styrkur á árinu 2016. Bæjarráð leggur áherslu á að fjáreigendur tryggi í samstarfi við Fjallskilanefnd að ekki verið ofbeit í hólfinu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15.