456. fundur Bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 27. október 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson forseti, Guðmundur L. Pálsson Bæjarfulltrúi, Kristín María Birgisdóttir 1. varaforseti, Marta Sigurðardóttir 2. varaforseti, Ásrún Helga Kristinsdóttir Bæjarfulltrúi, Þórunn Svava Róbertsdóttir varamaður, Ágústa Inga Sigurgeirsdóttir varamaður, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Í upphafi fundar óskaði forseti eftir heimild til að bæta tveimur málum á dagskrá með afbrigðum.
Fundargerð fræðslunefndar nr. 44
Fundargerð Sorpeyðingarstöð Suðurnesja nr. 463
Samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
1. 1503166 - Brimketill: deiliskipulag
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Kristín María, bæjarstjóri og Ásrún.
Tillaga að deiliskipulag fyrir Brimketil lagt fram. Tilgangur verkefnisins er að vinna skipulag fyrir hverfisverndarsvæði Brimketils þar sem lögð er áhersla á bætt og öruggara aðgengi og aukið verði gildi svæðisins til útivistar. Í leiðinni er verið að stýra umferð og vernda svæðið fyrir auknum ágangi. Meginmarkmið með deiliskipulagsáætluninni er að skilgreina aðkomu að svæðinu, skilgreina áningastaði og bílastæði og bæta aðstöðu til útivistar á svæðinu í heild. Svæðið er skilgreint sem hverfisverndarsvæði HV2 í Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030. Skipulagsnefnd hefur falið skipulagsfulltrúa að forkynna deiliskipulagstillöguna og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt til auglýsingar skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu Skipulagsnefndar samhljóða
2. 1509093 - Deiliskipulag norðan Hópsbrautar vesturhluti: Ósk um breytingu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, bæjarstjóri og Kristín María
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar lögð fram. Tillaga að breytingum er að eftirfarandi lóðir við Norðurhóp 1-3-5 og 7-9-11 verða 1-3A-3B-5 og 7-9A-9B og 11 og verða fjórbýli í stað þríbýlis. Byggingarreitir stækka um 2,5 m til vesturs.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og grenndarkynnt fyrir eigendum Norðurhóps 13, 15 og 17 sbr. 2. mgr. 43. gr. Skipulaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu Skipulagsnefndar samhljóða
3. 1510081 - Eldvörp:Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknaboranir
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, bæjarstjóri, Guðmundur og Marta
HS orka hf. óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir tilraunaborunum í Eldvörpum. Erindinu fylgir greinargerð með skemamynd af borplönum og verklagsreglum.
Tilgangur rannsóknarborananna er m.a. að:
- Auka við þekkingu á umfangi, eðli og innri gerð jarðhitasvæðisins
- Meta tengsl við næstliggjandi jarðhitakerfi í Svartsengi
- Skera úr um hæfi svæðisins til virkjunar
Rannsóknarholurnar í Eldvörpum verða þeirrar gerðar að þær geti nýst síðar sem vinnsluholur ef til virkjunar kemur. Mannvirkjagerð felst í uppbyggingu borplana, lagningu tengivega frá vegslóðum að borplönum og styrkingu tiltekinna vegslóða sem liggja um svæðið.
Skipulagsnefnd leggur ríka áherslu að farið verði eftir leiðbeiningum um frágang borteiga unnið af VSÓ dagsett í júlí 2015 og sett verði skilyrði í framkvæmdaleyfið um að lögun hvers borteigs fái samþykki eftirlitsaðila Grindavíkur áður en framkvæmt er. Einnig að lögð verði fram vöktunaráætlun um hvernig endurgræðslu á mosa verði háttað.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt með ofangreindum skilyrðum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu Skipulagsnefndar samhljóða
4. 1510086 - Staðarsund 1: umsókn um lóð
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur og Kristín María
HH smíði óskar eftir lóð við Staðarsund 1. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu Skipulagsnefndar samhljóða
5. 1510085 - Hópsnesvegur 1: Umsókn um lóð
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur og Kristín María
HH smíði óskar eftir lóð við Hópsnesveg 1. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu Skipulagsnefndar samhljóða
6. 1510082 - Kvikmyndataka við Bakka:Umsókn um framkvæmdaleyfi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og Guðmundur
Annasamir ehf. óskar eftir lokun á Verbraut fyrir framan Bakka í 2 daga á tímabilinu 17.-26. nóvember nk. Í erindinu kemur fram að svæðinu verði skilað í upprunalegu ástandi og að samráð við fyrirtæki á svæðinu hafi átt sér stað. Skipulagsnefnd gerir kröfu um að umsagnaraðili leggi fram kort með hjáleiðum, nákvæmar tímasetningar og jákvæða umsögn lögreglu a.m.k 2 dögum fyrir áætlaða lokun. Einnig að vegmerkingar verði settar upp í samræmi við leiðbeiningar Vegagerðarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfið verði samþykkt með ofangreindum skilyrðum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu Skipulagsnefndar samhljóða
7. 1510018 - Heilbrigiðseftirlit Suðurnesja: breyting á gjaldskrá 2015
Til máls tók: Hjálmar
Lagt fram erindi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, dags. 29. september 2015 ásamt sundurliðaðri tillögu að gjaldskrá eftirlitsins fyrir árið 2015. Umsögn heilbrigðisnefndar Suðurnesja, dags. 17. september 2015 liggur fyrir.
Með vísan til 12. og 25. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, 25. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 8. gr. laga nr. 6/2002 um tóbaksvarnir og að fenginni umsögn Heilbrigðisnefndar Suðurnesja, samþykkir bæjarráð framlagða tillögu að gjaldskrá Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja 2015.
Gjaldskráin skal auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þegar samþykki allra sveitarstjórna á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja liggur fyrir.
Bæjarstjórn staðfestir samhljóða ákvörðun bæjarráðs.
8. 1510024 - Ungmennaráð: Breyting á samþykktum
Til máls tóku: Hjálmar, Þórunn, Marta, bæjarstjóri, Kristín María, Guðmundur og Ásrún
Frístunda- og menningarnefnd leggur til breytingar á samþykktum ráðsins sem er ætlað að koma í veg fyrir að allt ungmennaráðið hætti í einu.
Tillaga
Lagt er til að vísa samþykktunum aftur til umfjöllunar í bæjarráði.
Samþykkt samhljóða
9. 1506037 - Viljayfirlýsing um Melhólabraut 2: ósk um framlengingu
Til máls tók: Hjálmar
Undirrituð viljayfirlýsing Alice Algae Iceland ehf. og Grindavíkurbæjar um lóð að Melhólabraut 2 fyrir þörungaframleiðslu er lögð fram til staðfestingar.
Bæjarstjórn staðfestir samhljóða framlengingu á viljayfirlýsingunni.
10. 1506028 - Fjárhagsáætlun 2016-2019: Grindavíkurbær og stofnanir
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir helstu atriðum áætlunarinnar.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Marta, Kristín María, Guðmundur, Ásrún og bæjarstjóri
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
11. 1510041 - Fundargerðir: Fulltrúaráð eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands 2015
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðin lögð fram.
12. 1509127 - Fundargerðir: Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2015
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðin lögð fram.
13. 1508119 - Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2015
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Marta og Kristín María
Fundargerðirnar lagðar fram.
14. 1510040 - Fundargerðir: Þekkingarsetur Suðurnesja 2015
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðin lögð fram.
15. 1509126 - Fundargerðir: Þjónustuhópur aldraðra 2015
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Guðmundur og bæjarstjóri
Fundargerðin lögð fram.
16. 1510002F - Bæjarráð Grindavíkur - 1392
Til máls tóku: Hjálmar, Marta, bæjarstjóri, Guðmundur og Kristín María
Fundargerðin lögð fram
17. 1510006F - Bæjarráð Grindavíkur - 1393
Til máls tóku: Hjálmar, Marta, Guðmundur, Kristín María, bæjarstjóri og Ásrún
Fundargerðin lögð fram
18. 1510008F - Bæjarráð Grindavíkur - 1394
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Marta og Guðmundur
Fundargerðin lögð fram
19. 1510005F - Hafnarstjórn Grindavíkur - 438
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðin lögð fram
20. 1510003F - Félagsmálanefnd - 57
Til máls tóku: Hjálmar og Guðmundur
Fundargerðin lögð fram
21. 1509016F - Umhverfis- og ferðamálanefnd - 8
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðin lögð fram
22. 1509015F - Frístunda- og menningarnefnd - 46
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðin lögð fram
23. 1509012F - Fræðslunefnd - 43
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðin lögð fram
24. 1509014F - Skipulagsnefnd - 9
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, bæjarstjóri, Marta, Ásrún, Guðmundur og Ágústa
Fundargerðin lögð fram
25. 1510007F - Skipulagsnefnd - 10
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, bæjarstjóri, Marta, Ásrún, Guðmundur og Ágústa
Fundargerðin lögð fram
26. 1510001F - Fræðslunefnd - 44
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Þórunn, Ásrún, Guðmundur og Ágústa
Fundargerðin lögð fram
27. 1509107 - Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2015
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Marta, Ásrún, Kristín María, bæjarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin lögð fram
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:45.