1393. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 13. október 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson varaformaður, Kristín María Birgisdóttir formaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. 1501236 - Bæjarskrifstofur Víkurbraut 62: Stækkun og breytingar
Framhald frá síðasta fundi.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umverfissviðs að vinna útboðsgögn og bjóða verkið út.
2. 1509069 - Félag eldri borgara í Grindavík: Samstarfssamningur 2016-2018
Tillaga frístunda- og menningarnefndar að samstarfssamningi milli Grindavíkurbæjar og Félags eldri borgara í Grindavík fyrir árin 2016-2019 lögð fram.
Bæjarráð frestar afgreiðslu til 3. nóvember.
3. 1508019 - Handverksfélagið Greip: Stækkun á aðstöðu
Tillaga frístunda- og menningarnefndar að samningi við Handverksfélagið Greip lögð fram. Í samningnum felst að félagið fær aukið rými fyrir aðstöðu sína.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
4. 1509123 - Körfuknattleiksdeild UMFG: Beiðni um nafnabreytingu á íþróttahúsinu
Körfuknattleiksdeild UMFG óskar eftir heimild til nafnabreytingar á Íþróttahúsinu Röstinni til þriggja ára. Frístunda- og menningarnefnd leggur til að erindið verði samþykkt, en leggur áherslu á að merkingar verði snyrtilegar og unnar í samvinnu við frístunda- og menningarsvið.
Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vera tengiliður vegna verkefnisins.
5. 1510024 - Ungmennaráð: Breyting á samþykktum
Frístunda- og menningarnefnd leggur til breytingar á samþykktum ráðsins sem er ætlað að koma í veg fyrir að allt ungmennaráðið hætti í einu.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
6. 1503148 - Starfsmannamál: Reglur um árshátíð o.fl.
Bæjarstjóri leggur fram tillögu að reglum varðandi árshátíð, gjafir, starfsmannadag og hreyfisamninga sem hafa það að markmiði að skýra réttindi starfsmanna hvað þessa viðburði varðar. Samráð var haft við sviðsstjóra og forstöðumenn stofnanna við vinnslu tillögunnar.
Bæjarráð frestar afgreiðslu.
7. 1510032 - Fiskeldi á Stað: Beiðni um undanþágu, fjarlægð frá sjó.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögn Grindavíkurbæjar um umsókn um undanþágu frá ákvæðum skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 um lágmarksfjarlægð bygginga frá vötnum ám og sjó vegna deiliskipulags fiskeldis á Stað.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að undanþágan verði veitt, enda er hún í samræmi við tillögu að deiliskipulagi sem bæjarstjórn samþykkti til auglýsingar 28. apríl 2015.
8. 1510046 - Styrkbeiðni: Kötlumót karlakóra
Karlakór Keflavíkur, f.h. Kötlu sambands sunnlenskra karlakóra, óskar eftir styrk til að halda Kötlumót 17. október næstkomandi.
Bæjarráð samþykkir að styrkja mótið með því að veita gjaldfrjáls afnot af gólfmottum bæjarins meðan á mótinu stendur.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10.