Að beiðni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Sigurðar Inga Jóhannssonar, sem jafnframt er fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis var boðað til fundar með sveitarstjórnarmönnum á Suðurnesjum og þingmönnum kjördæmisins í kjördæmaviku sem nú er nýafstaðin. Fundurinn var haldinn hér í Grindavík í glæsilegri aðstöðu okkar Grindvíkinga í Gjánni.
Sveitarstjórnarmennirnir héldu þingmönnunum sannarlega á tánum enda mörg brýn málefni sem brenna á heimamönnum þrátt fyrir uppgang á svæðinu síðustu misseri. Líflegar og góðar umræður sköpuðust á fundinum og fóru þingmennirnir vafalaust heim með þéttskrifaðar glósur og punkta.