Dagana 21. - 25. september tók Heilsuleikskólinn Krókur þátt í Move week eða Hreyfiviku sem Ungmennafélag Íslands stóð fyrir. Af þessu tilefni voru ýmsir viðburðir tengdir hreyfingu í boði í leikskólanum. Börn og starfsfólk hjálpaðist að við að fylla Þorbjörn og gekk það ágætlega og munum við örugglega hafa þennan skemmtilega viðburð aftur á næsta ári. Langar okkur að þakka foreldrum fyrir þátttöku þeirra í viðburðum leikskólans og hvetjum við alla til að halda áfram að hreyfa sig.